GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

fimmtudagur, ágúst 26, 2004

Blogg farið í loftið!

Já vinir og ættingjar nær og fjær (aðallega fjær), er loksins búinn að henda upp bloggi.
Til að byrja með verður þetta bara svona basic blogspot template en Óskar hefur lofað mér að búa til flottari skel utan um það. Er væntanlegt bráðlega ef kallinn stendur sig, so stay tuned.

Já það má segja að ég hafi fengið smá culture-shock þegar ég kom til Hirakata, heimaborg Kansai Gaidai sem verður skólinn minn í vetur. Allt öðruvísi en Tokyo sem er yfirfull af gríðarstórum og futuristic byggingum, ljósaskiltum og fólki.
Þegar við komum fyrst til Hirakata leist mér ekki alveg á blikuna. allt mjög lítið eitthvað, rosalega þröngt og sumir hlutar mjög niðurníddir. Það eru ekki einu sinni gangstéttir á flestum stöðum sem ég hef komið á hingað til. Húsin eru alveg upp við göturnar og það er máluð smá hvít lína meðfram götunum sem maður reynir sitt besta að halda sig fyrir innan.
Löbbuðum reyndar dáldið langt í gær til að fá okkur kvöldmat og þar fór maður að sjá aðeins hærri byggingar og opin svæði.

Japanski maturinn er mjög góður finnst mér þrátt fyrir að hafa smakkað bara brot af honum. Hef fengið mér rétti eins og kare raisu (curry rice), katsushita (ef ég man nafnið rétt), grænmetis ramen og fleira sem ég get ekki nefnt á nafn. Öllu þessu fylgir svo að sjálfsögðu heilbrigður skammtur af hrísgrjónum (nema ramen sem eru kínverskar núðlur). Það er alveg ljóst að eftir veturinn á maður eftir að hafa borðað meira af hrísgrjónum en síðustu 5-10 ár samanlagt.

Á morgun flyt ég svo loksins inn í íbúðina mína. Allir nemendur voru fyrst settir á heimavistina, sama hvaða húsnæðismöguleika þeir völdu sér. Svo fjórum manneskjum er troðið inn í herbergi sem rúmar rétt svo fjórar futon dýnur. Ekki beint þægilegt en það gerir það bara ennþá meira spennandi að flytja inn. Er afskaplega feginn að hafa verið settur í íbúð, sérstaklega eftir að ég hef fengið að kynnast aðstöðunni á heimavistinni.

Net tenging á svo að vera kominn upp í íbúðinni í september í fyrsta lagi og þá verður maður að hringja í NTT DoCoMo og reyna að klóra sig í gegnum það að panta tengingu á japönsku. Að fá sér farsíma er þó ofar í forgangsröðinni, svo það mun vonandi gerast bráðlega.