GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Typhoon, Osaka, slotið í Gotenyama og myndirnar




Vil byrja á því að biðja fólk afsökunar yfir því að hafa ekki staðið við loforð mitt í gær... Það var vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Mætti í skólann í fyrsta tímann minn og eftir 10-20 mínútur gall í hátalarakerfinu að vegna stormviðvörunar af háu stigi (typhoon) væru allir kennslutímar dagsins, þarmeð talinn þáverandi tími, felldir niður.
Rosa æsingur komst í mannskapinn og öllum var sagt að hypja sig heim ef þeir vildu ekki vera lentir upp í næsta ljósastaur. Við drifum okkur strax heim og gat ég því ekki sett inn nýja bloggfærslu eins og ég hafði ætlað mér að gera eftir tímann. Engin nettenging er heima hjá mér svo ekki gat ég gert það þaðan.
Nú dagurinn leið og enginn typhoon var að láta sjá sig. Það var ekki fyrren um nóttina að það fór að hvessa allverulega, en samt varla eitthvað til að loka verslunum og svona fyrir (okkur var neitað inngöngu að stórmarkaði fyrr um daginn vegna viðvöruninnar).
Stormurinn var þó eitthvað sterkari annarsstaðar því 5 dóu í honum í nótt og fleiri eru slasaðir eða saknað eins og lesa má í þessum fréttum á Japan Times.com og Mainichi Daily News.

Fór til Osaka á fimmtudaginn og skoðaði hinn mikilfenglega Osaka Jo (Osaka castle). Huge kastali sem var sá stærsti í Japan árið 1500 og rabbabari. Þetta er reyndar endurgerð af honum sem ku víst vera aðeins minni en sá upprunalegi. Skoðunarferðin var á vegum Kansai Gaidai og fórum við 7 eða 8 strákar með 3 japönskum guide-um. Nú þessar japönsku stelpur löbbuðu hægar en andskotinn og þess vegna tók skoðunarferðin í kringum 3 klst. lengur en þurft hefði annars. Við vorum alltaf langt á undan þeim, jafnvel þó við værum að reyna að labba hægt.

Flutti svo inn í íbúðarhúsnæðið í Gotenyama ásamt Dóra, Sigga Magga og hrúgu af ameríkönum og evrópubúum. Íbúðirnar eru litlar eins og við var að búast, eitt herbergi og klósett sem er aðeins stærra en flugvélarklósett. Ég kvarta svosem ekki, fyrir utan mjög svo pirrandi japanska nágrannann minn sem spilar háværa tónlist öllum tímum sólarhringsins og hefur hreint ótrúlegt úthald í að spila á kassagítar verulega fast og syngja hávært með.

Ég, Dóri og Siggi kíktum aftur til Osaka á laugardagskvöldinu. Ætluðum að finna eitthvað rosa djamm þar en þekkjum náttúrulega ekkert til Osaka svo það var heldur misheppnað. Tókum eina af síðustu lestunum heim klukkan 23:30, alveg dauðþreyttir. Dóri og Siggi voru alveg komnir inn í japönsku listina við að sofa í lest báðar leiðirnar.

Að lokum verð ég að svíkja ykkur um myndir héðan. Bæði vegna þess að ég hef ekki myndvinnsluforrit til þess að minnka myndirnar og svo sýnist mér CCD myndskynjari myndavélarinnar minnar alveg að vera að gefa sig. Myndgæðin eru orðin vægast sagt hörmuleg. Ekki veit ég af hverju, en ég ætla hugsanlega að spyrja svara á einhverjum góðum myndavéla forum. Svo það bendir allt til að maður kaupi sér einhverja vél hérna úti, helst eins litla og hægt er.

Var í fyrsta japönskutímanum mínum áðan. Hann fór mestallur í upprifjun og svona. Verð að segja að ameríkanarnir fara alveg ferlega í taugarnar á mér... Þeir eru vægast sagt ömurlegir í framburði, það er afskaplega truflandi finnst mér. Og svo keppast þeir við að svara kennaranum, tekur því ekkert að svara spurningum sem beint er að bekknum því kanarnir eru alltaf strax búnir að gaspra eitthvað á undan manni. En þeir mega eiga það margir að þeir hafa góðan orðaforða. Mun allavega staðsetja mig sem lengst frá þeim í japönskukennslustofunum í framtíðinni.