Djamm í Osaka, þrumur, eldingar og killer jarðskjálftar
Á laugardagskvöldinu hoppuðum ég, Kristófer, Dóri, Siggi og Mikhael upp í lest til Osaka að hitta Helga (úr japönskunni í HÍ) og Tomoko kærustuna hans. Dóri hafði keypt smá af sterku áfengi til upphitunar áður en við fórum og komust við þannig að því að sterkt áfengi er fáránlega ódýrt hérna. Veit ekki hvað var mikið í vodkaflöskunni, eflaust 500ml en hún kostaði ekki nema 600-700 yen (400-500kr.)! Whiskypeli sem hann keypti líka var á 300 yen og þetta var keypt í búðinni á neðstu hæð hússins sem við búum í. Það er því nokkuð ljóst að bjórinn hérna er ansi dýr í samanburði, 200-270 yen fyrir 500ml dós.
Þegar til Osaka var komið skildu leiðir og Siggi og Mikhael fóru á einhverja tónleika. Við hinir hittum Helga, Tomoko, vinkonu Tomoko og bandarískan kærasta hennar. Skelltum okkur á veitingastað sem heitir Otokono wa Tsurai ef minnið bregst ekki. Þetta var víst mjög hip staður fyrir ungt fólk og maturinn var sannarlega góður, ef nokkuð dýr. Dóri varð eftir þar með einhverjum hollenskum og bandarískum vinum sínum og varð vitni að því þegar veitingastaðurinn breyttist í hommabar klukkan 23! Einnig fóru vinkona Tomoko og kærastinn hennar heim eftir matinn.
Ég, Helgi, Kristófer og Tomoko rötuðum svo inn á klúbb með góðri tónlist eftir tvær misheppnaðar tilraunir á aðra klúbba. Rándýrt inn reyndar, 3000 yen, en tónlistin var nánast þess virði fannst mér. "Frír" drykkur innifalinn eins og virtist vera á flestum stöðum.
Nú við dönsuðum af okkur lappirnar á þessum ágæta skemmtistað þangað til við vorum alveg örmagna af þreytu. Kom reyndar smá hlé á dansinum klukkan ca. 1 eða 2 um nóttina þegar allt í einu músíkin stoppaði og það myndaðist hringur hjá DJ búrinu. Við vissum ekki alveg hvaðan á okkur stóð veðrið og áttum von á einhverri break keppni eða eitthvað. Það lyftist svo á okkur brúnin þegar fáklæddir kvenmenn stigu trylltan dans hver á eftir öðrum, með tveimur karlkyns atriðum á milli. Eftir það hélt dansinn áfram. Ekki öflugir í dansinum þessir japanir því meirihlutinn sat bara og horfði á, og klukkan 3 eða 4 var mest öll restin af fólkinu sofnað upp í sófa þangað til fyrsta morgunlestin byrjaði að ganga. Við skröltum svo í lestina klukkan 05:30 og var ég hálfsofandi í henni allan tíman. Kom heim klukkan 06:00-06:30 alveg gjörsamlega búinn á því.
Í gær urðum við félagarnir í Gotenyama fyrir skelfilegri lífsreynslu. Sátum á rúminu hjá Dóra sem allt í einu fór að hristast eins og öflugasta vibrator rúm á love hóteli. Vorum smá tíma að átta okkur á því að þetta væri jarðskjálfti og hlupum í dyragættina alveg dauðskelfdir. Jarðskjálftinn var alveg heil 6,8 á Richter og endist í rúmlega mínútu. Á miðnætti um kvöldið kom svo annar ennþá stærri, 7,4 á Richter sem endist líka í mínútu. Var í makindum uppi í rúmi að fara yfir japönskuorðaforðann og stökk á fætur og í dyragættina. Svo var húsið á hreyfingu í smá tíma eftir á og leið manni eins og maður væri sjóveikur. Hef bara aldrei upplifað annað eins.
Bendi á fréttir um málið á Mainichi Daily News og Japan Times.
Fyrr um daginn hafði líka gert þetta vonsku veður. Eldingar á alveg mínútu fresti og rigningin svo hörð að hún var eins og hagl. Heyrðust líka nokkrar þrumur og ein greinilega alveg ótrúlega nálægt því maður fékk alveg suð í eyrun af henni. Bara nánast eins og það hefði komið elding fyrir utan gluggan! Eðlileg viðbrögð voru náttúrulega hressileg "SHIT!" upphrópun.
Ekki nóg með það þá er búið að gefa út typhoon viðvörun fyrir morgundaginn skilst mér.
Já náttúruöflin í Japan eru greinilega ekkert lamb að leika sér við.

<< Home