Ferðasagan, annar hluti
Jæja hefst þá seinni lotan.
Lentum á hádegi laugardaginn 21. ágúst og hittum þar Sigga Magga á Narita flugvellinum og tókum rútu til Tokyo. Tokyo var mjög flott, mjög futuristic og stórar byggingar og opin svæði víðsvegar þrátt fyrir að vera þéttbyggð. Það var svo ekki fyrren við fórum með frænda Kristófers sem býr í Tokyo í skoðunarferð til Ginza hverfisins í Tokyo að maður fór að sjá þessi risa ljósaskilti og skjái út um allt. Mjög töff.
Nú ekki margt merkilegt gerðist í Tokyo, basically bara við að horfa upp í loftið með gapandi munninn og næstum að rekast á fólk í leiðinni. Algjörir túristar. Vorum líka þeir einu sem við sáum í stuttbuxum og sandölum í þessum gífurlega hita. Svo tók líka smá tíma að aðlagast sólarhringnum hérna auk þess sem maður var ofur jet-lagged.
Á mánudeginum tókum við svo shinkansen ("bullet train" hraðlestir sem fara á 200-300 km. hraða) til Kyoto sem tók um 2 tíma. Kansai Gaidai var með pick-up service þar sem samanstóð af einum verulega sveittum og stressuðum japana sem bað okkur um að bíða aðeins lengur á 5 mínútna fresti. Við biðum svo í klukkutíma framyfir pick-up tímann því einhverjum nemendum tókst víst að villast á lestarstöðinni. Mun meiri hiti og raki var í Kyoto en Tokyo svo við svitnuðum allhressilega meðan við biðum þarna. Einn góður punktur í því var samt að keisari Japans átti leið um lestarstöðina svo maður er búinn að sjá hann með eigin augum. Margir höfðu safnast til að bera keisaran augum og var einnig fólk í vinnu við að gefa út fána. Við skiptinemarnir fengum öll fána til að fagna komu keisarans að sjálfsögðu. Keisarinn veifaði til fjöldans og gífurleg fagnaðarlæti brutust út auk þess sem fjöldi farsímamyndavélaflassa blossaði. Merkilegt að sjá á þriðja deginum í Japan.
Þegar allir nemendur sem ætluðu að notfæra sér pick-up service-ið voru mættir hófst ferðin til Hirakata. Þegar maður heyrir orðið pick-up service hugsar maður bíll eða rúta eða eitthvað til að "picka mann upp" en þeir leggja einhvern annan skilning í orðið hérna greinilega. Eltum bara gaurinn með ferðatöskurnar okkar milli þriggja lesta ef minnið bregst ekki sem við þurftum að borga sjálf að sjálfsögðu. Þegar við komum á endastöðina þurftum við svo að taka taxa og gátum bara farið tvö í hvern bíl vegna mikils farangurs. Vorum loksins komin á dormitory-ið klukkan sex eða sjö, alveg uppgefinn og gegnsósa af svita.
Strax daginn eftir hófst vika mikillar skriffinsku, stöðupróf, skráningar og fleira og fleira. Gekk svona bærilega á stöðuprófinu. Náði ekki mikið að læra fyrir það og bjóst ekki alveg við því að það yrði strax morguninn eftir að ég kæmi til Hirakata. Var svo settur í level 2 í Spoken Japanese og level 2 í Reading&Writing miðað við niðurstöður prófanna. Bara sáttur við það enda sýnist mér á öllu að miðað við málfræðiatriði og fjölda kanji stafa sem við eigum að kunna fyrir level 2 í báðum kúrsum að ég eigi heima þar.
Jæja, núna eru allir eflaust komnir með hundleið á svona þurrum upptalningum svo ég skal reyna að hafa eitthvað skemmtilegra í næsta pósta.

<< Home