GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, september 01, 2004

Ferðasagan, fyrsti hluti

Vegna fjölda áskoranna ætla ég að segja frá ferðasögunni til Japans í aðalatriðum.

Vaknaði klukkan 04:50 eftir í kringum 3ja tíma svefn og fór í sturtu og fékk mér í svanginn. Pabbi borgaði rúmlega 5 þúsund kall í yfirvikt hjá Iceland Express, enda var ég með 38,5 kíló í tveimur stórum ferðatöskum. Það var ágætlega sloppið því ég þurfti ekkert að borga á Heathrow, á meðan Kristófer kallinn var rukkaður um 20 þúsund kall fyrir töluvert léttari farangur. Það átti víst að vera bæði gjöld sem væru rukkuð á Heathrow og Narita í Japan, en miðað við mína reynslu er þetta bara eitthvað scam hjá Flugleiðum!

Var með heila sætaröð fyrir mig í Iceland Express vélinni og átti ég mjög bágt með að halda mér vakandi. Sat í hinum ýmsu stöðum, allar jafn óþægilegar, hálfsofandi með slefið út á kinn. Þegar ég lenti á Stansted hófst svo kapphlaup við klukkuna. Ég hafði enga hugmynd um hvað þetta myndi taka langan tíma að koma mér á milli og svona svo ég dreif mig eins og ég mögulega gat. Eftir að hafa beðið dáldið eftir töskunum rúllaði ég hrúgunni niður á rútustöðina og keypti mér miða í rútuna til Heathrow. Hún var einn og hálfan tíma á leiðinni þegar hún loksins lagði af stað, en fólk var dáldið lengi inn í hana og helmingurinn vissi ekki hvaða terminal á Heathrow það var að fara á (farangri var raðað í rútuna eftir terminals). Rútuferðin var svipuð flugferðinni á undan, ég hálfsofandi með hálsríg í óþægilegum stöðum.

Þegar ég fann svo innganginn að Terminal 1 á Heathrow var þetta nokkuð örugg sigling. Hafði einn og hálfan tíma fyrir flugtak og allt í góðu. Var víst óvenju lítið að gera á Heathrow samt, enda þurfti ég ekkert að bíða eftir að tékka mig inn. Var búinn að tala um að ferðin til Heathrow hefði verið eitthvað ævintýri, hún var það ekki beint, bara pínu stress en ekkert rosa mál neitt.

Hitti svo Kristófer fyrir utan landganginn og eftir að hafa stíflað miðavélina með miðanum mínum og ollið smá töfum vorum við komnir inn í vél.
Flugið til Japan var svo þægilegasti parturinn. Öll sætin höfðu sér skjái fyrir hvern og einn og 18 stöðvar til að velja úr um sem sýndu myndir. Hafði nú lítinn áhuga á þeim flestum svo ég flakkaði aðallega milli stöðva. Spilaði svo dáldið Game Boy og horfði á smá anime á lappanum ásamt Gothika sem ég hafði rippað af DVD fyrr í mánuðinum. Svo kom maður inn klukkutíma eða svo af svefni í vélinni. Kristófer hafði líka heila röð fyrir sig í vélinni svo ég var fljótur að flytja mig þangað úr sætinu sem mér hafði verið úthlutað. Það skipti miklu upp á þægindin því við höfðum eitt sæti á milli okkar til að geyma drasl í, teygja úr löppunum og fleira.

Á morgun kemur svo annar hluti sem snertir aðeins á Tokyo og ferðinni til Kyoto þar sem skólinn var með sitt "pick-up service" ef kalla má það.