GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

föstudagur, september 24, 2004

Gemsarugl

Var að koma úr löngu og ströngu gemsakaups session-i sem ég hafði platað Jeff vin minn frá USA til að hjálpa mér með. Þvílíkt og annað eins.
Ég var alveg búinn að kynna mér planið sem ég vildi fá og búinn að velja mér símamódel en auðvitað var samt reynt að fá mig til að fá mér dýrara mánaðarplan og ég veit ekki hvað. Svo þurfti að ganga úr skugga um að ég vissi nákvæmlega hvað fælist í samningnum og svo framvegis. Hefði verið nokkurn veginn lost ef ég hefði ekki haft Jeff með mér enda sá hann aðallega um talið fyrir mig.

Eftir að allt hafði verið frágengið fórum við að fá okkur að borða meðan þeir settu símann upp fyrir mig. Eftir hálftíma eða svo var hringt í Jeff og við drifum okkur á staðinn. Þeir byrjuðu á því að hafna kreditkortinu mínu með einhverri bullshit afsökun um að VISA á Íslandi interactaði ekki við VISA í Japan eða Vodafone. Náði ekki alveg hvort það var. Nú þvínæst vildu þeir að ég sýndi einhver kort eða official pappíra sem innhéldi heimilisfangið mitt í Japan. Ég á ekkert slíkt þar sem ég hef ekki enn fengið Alien Registration kortið mitt og því var mér hreinlega hafnað um að gera samning. Nú þekki ég fyrir 3 íslendinga sem hafa fengið sér Vodafone síma hérna og veit fyrir víst að þeir hafi notað Mastercard eða Visa kort og ekki verið með nein skjöl upp á heimilisfang. Meira að segja Árni í Tokyo er kominn með Vodafone síma og hann er ekki einu sinni kominn með fast heimilisfang.

Starfsfólkið í búðinni var samt sem áður mjög almennilegt og stelpan sem afgreiddi okkur var alveg dýsæt, sem gerði ekki illt verra. Þar sem að þetta var heldur ekki fully-fledged Vodafone útibú er kannski skiljanlegt að þeir hafi viljað fylgja Vodafone reglunum to the letter. Svo var líka töluvert um samskiptaörðugleika eins og gefur að skilja. Jæja, ég fer þá bara í alvöru Vodafone útibú á mánudaginn með Sayaka-san mér innan handar.

Hitti Sayaka-san síðasta miðvikudag ásamt Azusa, tvíburasystur hennar og spjallaði og fór yfir heimavinnuna hennar. Tvær vinkonur hennar komu reyndar með í örstutta stund til að bera útlenska dýrið augum. Sayka gat svo ekki hætt að hlæja alltaf þegar ég sagði eitthvað þangað til ég spurði hana út í það nánar. Hún tjáði mér að hún væri bara svo feimin. Skrítin feimni það en allavega betri en þögul og hlédræg feimni. Systir hennar stakk svo upp á því að við færum öll út að borða einhvern tíman á yakiniku (bein þýðing= steikt kjöt) stað sem hún vinnur á nálægt Osaka kastala. Speaking partner tengslin eru semsagt eitthvað að batna þrátt fyrir skrítna byrjun. Hún hefur eflaust bara verið svo feimin þegar við hittumst fyrst sem skýrir hvað hún var treg til að plana eitthvað annað en að fara yfir heimavinnuna sína.

Ekkert sérstakt planað um helgina nema kannski að athuga með Umeda Sky Building aftur og e.t.v. skoða capsule hótelin góðu sem ég minntist á síðast.