GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

mánudagur, september 13, 2004

Helgarferð til Kyoto

Já eins og áður sagði skelltum við félagarnir okkur til Kyoto að heimsækja hann Mikhael.
Ekki mikið gerðist á föstudeginum, fórum út að borða og snemma í háttinn. Tókum laugardaginn snemma í staðinn og skoðuðum okkur aðeins um í Kyoto. Það fól í sér mikið labb og einhverjar lestarferðir. Löbbuðum á þennan flóamarkað sem ég hafði talað um, hann var staðsettur fyrir utan þetta mikilfenglega musteri. Ekki mikið að sjá á flóamarkaðnum en musterið var flott og munkarnir inni í því voru allir með sígarettu í kjaftinum. Kíktum í bókabúð á 5 hæðum sem meðal annars seldi efni á ensku og keypti ég mér þar slatta af manga og eina sci-fi bók, The Ringworld Throne (sem er annað framhald Ringworld bókarinnar frægu).
Þvínæst héldum við á ljósmyndasýningu hins fræga franska ljósmyndara Henry Cartier-Bresson. Hann Lést einmitt í ágúst á þessu ári 95 ára gamall. Glöggir kannast kannski við þessa mynd sem er ein af hans frægari.

Nú næst á dagskrá var hið frábæra sér japanska fyrirbæri sento sem ég var að prófa í fyrsta skipti. Sento er í rauninni baðhús sem er fullt af heitum pottum og öðru skyldu. Sento eru aðskilin fyrir karla og konur og allir eru naktir. Þetta sento var á mörgum hæðum svo eftir að við vorum komnir á typpið fórum við fjórir naktir karlmenn saman í lítilli lyftu upp á aðra hæð. Þar settist maður niður á pínulítið plaststykki og kveikti á sturtu sem sprautar í raun á móti manni. Svo eru kranar og fötur til að skvetta vatni yfir sjálfan sig til að skola sig betur. Eftir að maður hefur skrúbbað sér vandlega getur maður farið í pottana. Þeir voru flestir alveg sjóðbrennandi heitir og hafa sumir kaldan og blautan þvottapoka á hausnum á sér til að láta sér líða betur eða til að koma í veg fyrir að það líði yfir þá hreinlega. Eftir að hafa orðið gjörsamlega soðinn í einum pottinum var kominn tími til að testa rafmagnspottinn. Já þið heyrðuð rétt. Þeir eru með heitapotta með rafmagnsskautum ofan í hérna í Japan. Ansi óþægileg lífsreynsla það ef ég á að segja eins og er. Þegar maður setti lappirnar eða handleggina á milli tveggja panela sem gáfu frá sér rafmagn fóru taugaboðin alveg í fokk. Gott dæmi um það er þegar ég setti handleggina á milli þá bognuðu þeir allir inn að bringu hjá mér og hafði ég enga stjórn á þeim. Ég fékk semsagt að upplifa first-hand öflug spasma viðbrögð. Var með náladofa út um allt eftir það ævintýri.

Svo voru litlir eins manns pottar með kröftugri lóðréttri vatnsbunu og var það eins og að sitja í miðjum fossi. Mjög þægilegt. Svo voru minni og kaldari pottar til að chilla í, meðal annars einn litaður sem var með lituðu bláu vatni. Engin ljós eða neitt að breyta litnum, vatnið var blátt. Þeir breyta víst litnum í honum daglega.
Sjónvarpsherbergi var líka á staðnum þar sem allsberir karlmenn sátu og horfðu á hafnaboltann eða lögðu sig á gólfinu fyrir framan sjónvarpið. Sento ferðin var svo kláruð með góðu skrúbbi og stuttri dífu í ískalda pottinn. Við félagarnir vorum alveg heillaðir af þessu sento fyrirbæri og verst finnst mér að geta ekki tekið myndir af þessu, því það er erfitt að lýsa andrúmsloftinu eða útlitinu þarna inni með orðum. Þetta var allavega magnaðasta og besta baðupplifun sem ég hef upplifað. Nokkuð ljóst að ég þarf að finna mér sento í Gotenyama sem fyrst.

Þetta er aldeilis ekki búið. Mættir ferskir úr sento-inu fórum við út að borða á hinum stórskemmtilega A-Bar í Kyoto. Þar var heldur en ekki stuð og staðurinn vel pakkaður af japönum og örfáum útlendingum. Tveir hressir japanskir strákar og þrjár japanskar stelpur sem brugðu sér strax á tal við okkur og urðum við brátt drukknir í góðra vina hópi. Japönsku stelpurnar voru mjög hissa á því að ég væri bara 21 árs gamall og ítrekuðu það margoft að þær væru allar 24. Þær vildu svo mikið að ég segði hver þeirra væri unglegust og hver næstunglegust með tilheyrandi 'victory/peace' merkjum. Seinna komu svo einhverjir ítalir, bæði stelpur og strákar, sem við töluðum líka slatta við. Flestir af þeim töluðu litla eða enga ensku svo tjáskiptin fóru fram á japönsku að mestu leyti. Góð æfing í því líka.

Þegar A-Bar var lokað sögðum við skilið við vini okkar þar (enda þeir að fara heim) og rúlluðum illa mökkaðir inn á flottan karaoke stað. Fengum sér klefa fyrir okkur eins og algengt er hér og urðum steinhissa þegar okkur var tjáð að við mættum drekka áfengi eins og við vildum. Menn börðu sér á bringu með gamla íslendingastoltið, "Eruð þið nú alveg viss? Við erum ÍSLENDINGAR hérna!" Dóri var líka duglegur að panta inn bjórana sem enginn svo drakk vegna mikillar ölvunar fyrir. Það var svo tekið hraustlega á því í karaoke, bæði dúettar og einsöngvar. Hreint frábær skemmtun þetta karaoke hér og verður það endurtekið aftur mjög fljótlega. Að ég tali nú ekki um ef áfengið er frítt.

Á leiðinni heim til Mikhaels hittum við svo skiptinemavini Dóra úr Kansai Gaidai sem var hreint ótrúleg tilviljun í Kyoto af öllum stöðum. Vorum ekkert rosalega öflugir á sunnudeginum og fórum snemma heim aftur til Gotenyama.