GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

föstudagur, september 17, 2004

Helgarfrí

Hitti speaking partner stelpuna á miðvikudeginum.
Hún var svona sæmilega hress, hló oft og svona. Var allavega ekki feimin í enskunni. Hún hafði aldrei heyrt um Ísland áður og tók það mig smá tíma að útskýra að ég væri ekki frá einhverri nafnlausri eyju bara (Island??). Sé samt ekki framtíðarvin í þessari stelpu, virtist ekki hafa áhuga á að gera neitt með mér nema tala saman og láta mig hjálpa sér með heimavinnuna sína í ensku. Finnst hún taka þetta "speaking" partner term aðeins of alvarlega. Hún hafði t.d. skrifað á umsóknina að henni þætti gaman af kvikmyndum og ég bauð henni að horfa á Sódómu Reykjavík einhvern tíman (tók hana með á DVD) og hún var ekkert sérstaklega jákvæð á það.
Mun hitta hana næsta miðvikudag og hjálpa henni með einhverja dagbók í ensku sem hún þarf að skila í hverri viku.

Nú eftirrétta smökkunin heldur áfram, ég og Mikhael fengum okkur nan brauð og ís á veitingastað í gær. Semsagt bítur nan brauðs bita og færð þér svo ís strax á eftir, eða skóflar ís á nan brauðið. Ansi skrítin samblanda sem okkur fannst alveg fáránleg reyndar til að byrja með. Bragðið fór svo að venjast þangað til það var orðið bara nokkuð gott á endanum.

Frábært að vera kominn í 3ja daga frí! Svo er næsta vika líka í styttri kantinum því það er líka frí á fimmtudeginum. Keypti mér hjól loksins rétt áðan eftir misheppnaða tilraun í gær, labbaði lengst í einu hjólabúðina sem ég veit um og hún var lokuð af einhverri fáránlegri ástæðu.
Vegna frísins á mánudeginum verður líklega ekkert blogg hjá mér fyrren á þriðjudag, gomen ne!

Að lokum vil ég senda afmæliskveðjur til systra minna beggja, Ragnheiði sem átti afmæli 9. september og Kristínu sem á afmæli í dag!