GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

fimmtudagur, september 09, 2004

Hitt og þetta

Þessi póstur átti upphaflega að koma inn í gær en vegna þess að blogspot.com var með stæla þá var það ekki mögulegt..

Ætlaði mér að blogga í fyrradag (þriðjudag) en var rekinn heim klukkan 13:00 úr skólanum vegna typhoon viðvörunnar. Skrapp nú samt í mötuneyti skólans áður en ég fór heim og fékk mér að borða. Þeir setja greinilega öryggið fyrst hérna því það gerðist hreinlega ekki neitt í Gotenyama hverfi Hirakata í gær. Smá rok jújú, en ekkert til að tala um. Þessi typhoon er samt að gera usla annarsstaðar og er hann sá 18. á árinu í Japan. Update: Frá og með miðvikudeginum hafa 31 manns látist í nýjasta fellybylnum, 900 slasast og 14 er enn saknað. Meira á Japan Times

Nettenging væntanleg um mánaðarmótin! Og það engin smá tenging, 100 megabit hvorki meira né minna. Á svoleiðis tengingu er maður að downloada 125 megabyte-um á 10 sekúndum. Hreint magnað.

Ef fólk hefur ekki fylgst með fréttum heima (mbl.is allavega) þá kom einn eftirskjálfti hérna í gærmorgun. Ég var svo svefndrukkinn að ég nennti ekki upp úr rúminu þegar ég varð var við hann. Það má víst búast við svipuðum eftirskjálftum (ca. 5 á richter) næstu tvær vikurnar. Ef fólk hefur meiri áhuga á þessum killer skjálftum hérna þá er ýmisleg tölfræði og upplýsingar á þessari forvitnilegu síðu sem ég fann á blogginu hans Kristófers. Ágætt líka að troða inn smá fróðleik um Richter skalann, en hann tífaldast við hverja tölu sem hann hækkar um. Svo jarðskjálfti sem er 7 á Richter er tífalt stærri en skjálfti sem er 6 á Richter. Brútal.

Hvað um það, skilaði inn umsókninni minni í language speaking partner program skólans. Svo ég verð kynntur fyrir einhverjum hressum japönskum krökkum bráðum í gegn um það.
Maður er eitthvað farinn að hugsa um að fá sér ódýrt sjónvarp inn til sín. Skilst að það sé hægt að fá sér slíkt á 10.000 yen. Eflaust í frímerkjastærð en það væri bara í stíl við herbergið. Það er vel hægt að læra tungumál af sjónvarpi, hjálpaði manni svo sannarlega með enskuna. Svo er svo mikið af óborganlegu sjónvarpsefni hérna, allskonar rugluðum gameshows og auðvitað anime.

Fórum um daginn nokkrir strákar á bara eitthvað veitingahús. Matseðillinn var bara pappaspjöld með stöfum uppi á veggnum svo við vissum ekkert hvað var á boðstólum. Pantaði mér chiisu beekon eitthvað og eftir nokkurn tíma kom í ljós að staðurinn seldi þessar svokölluðu japönsku "pizzur". Þær eiga rauninni fátt sameiginlegt með pizzum nema þær eru kringlóttar og með gumsi ofan á. Þar sem er brauð á pizzum er einhver fiskhrærigrautur með smokkfiski eða kolkrabba blandað við á þessum. Ofan á það er sett gums og svo á toppnum er gult majones sem við héldum fyrst að væri ostur. Lít ekki á mig sem matvandan en þetta fannst mér alveg afskaplega vont. Mjög heimilislegur staður samt, heil hilla með manga til að lesa meðan maður bíður og svo var þessi skemmtilegi þáttur í sjónvarpinu með "Beat" Takeshi Kitano, þeim kunna japanska leikara.

Held ég hafi lítið talað um áfangana tvo sem ég er í hérna fyrir utan japönskuna. Annar heitir Making News in Japan og fjallar um nýjustu fréttir hverju sinni í Japan og hvernig fjölmiðlakerfið og fréttaumfjöllun virkar hérna. Mjög áhugaverður áfangi það. Hinn heitir The Body and Communications in Japan. Hann er smá vonbrigði þar sem ég hélt að þetta yrði um allskonar gestures, body language, tattoo og fleiri, en svo kemur í ljós að gaurinn sérhæfir sig í japönsku táknmáli fyrir heyrnalausa! Verð þó áfram í honum þar sem það áhugaverða að ofan er hluti af kúrsinum, verð bara að læra slatta af táknmáli heyrnalausra í leiðinni. Annars er vel nóg að gera í japönskunni, búinn að fara í 3 vocabulary quiz og eitt reveiw test á einni og hálfri viku núna.

Að lokum vil ég minnast á veðurspár script sem ég setti á síðuna. Það sýnir veðrið í Osaka, en Hirakata er einmitt úthverfi Osaka og hluti af Osaka prefecture. Þetta er óttalega ljótt script, en þó það skársta sem ég gat fundið. Látið mig vita ef þið eruð ekki að fíla það og þá tek ég það kannski niður eða finn eitthvað betra. Eða segi ykkur að þegja.