GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, september 21, 2004

Ken Ishii rocks the house!

Fríið góða búið og skólinn tekinn aftur við. Gerði svosem ekki margt merkilegt um helgina samt. Fór ekki í Umeda Sky Building eins og fyrirhugað var, bölvuð leti í rauninni.
Á laugardeginum fórum ég, Dóri, Siggi og hollendingur að nafni Paul og fengum okkur kínverskan mat. Eftir smá drykkju heima var haldið í afmælispartý hjá japanskri stelpu sem ég man ekki nafnið á og homma sem heitir Yoshi. Gleðskapurinn var haldinn á skemmtistaðnum Jam Jam eða Gem Gem (ekki hugmynd um hvort það var). Frekar lítill staður, en mikil stemning og húllum hæ. Þrátt fyrir ágætis skemmtun með innfæddum þar fór ég snemma heim eftir of mikla drykkju.

Mikil rólegheit á sunnudeginum með vaxandi stuði með kvöldinu, víðsvegar súld og rigning á köflum. Fór með Mikhael og Dóra á veitingastað í götunni okkar sem kom okkur þægilega á óvart. Mjög góður matur þar á mjög sanngjörnu verði. Fékk þessar líka frábæru takoyaki bollur þar meðal annars en það eru svona djúpsteiktar kolkrabbabollur.

Ég og Dóri vorum frekar lúnir eftir gærkvöldið og náðum okkur bara í mynd eftir það. Hin skemmtilega vampírumynd Innocent Blood eftir John Landis varð fyrir valinu. Hafði reyndar séð hana áður en var alveg til að endurtaka leikinn. Stórskemmtileg mynd þar sem gamla brýnið Robert Loggia fer alveg á kostum sem óður mafíósi sem verður að vampíru. Alltaf stutt í húmorinn hjá John Landis líka en hann hefur gert myndir eins Blues Brothers, An American Werewolf in London og Into the Night.

Siggi og Mikhael voru ekki að fíla þessa leti í okkur og rifu okkur upp á rassahárunum og í næstu lest til Osaka. Fyrst við höfðum ekki hugmynd um hvar old-shool hardcore kvöldið átti að vera (og vegna heilaþvotts frá resident techno-guru-inu, Mikhael) fórum við að sjá frægasta teknó tónlistarmann Japans, Ken Ishii, en hann var með gigg á klúbbi í Shinsaibashi. Hreint mögnuð stemning þar og klúbburinn vel pakkaður. Hef nú aldrei verið mikið fyrir teknó, en Ken Ishii var með gott bít í gangi sem erfitt var að standa kyrr við. Hápunktur kvöldsins fyrir mér var svo þegar hann setti á gamlan og feikna harðan old-shool hardcore slagara og það ætlaði allt um koll að keyrast á dansgólfinu. Að venju þurfti maður að vera alla nóttina í bænum til þess að ná lest heim svo ég skreið ekki upp í rúm fyrren klukkan 9 um morguninn! Úff sko, það tekur á að fara á djammið hérna. Næst á dagskrá er svo að skoða capsule hotel í Osaka for future reference. Það ku vera allavega eitt í Shinsaibashi og eitt í Umeda hverfi, yfirleitt nálægt stærstu lestarstöðvunum. Þessi hótel gætu auðveldlega orðið manns besti vinur á djamminu í framtíðinni.