Resident evil natto
Hreint rosaleg rigning búin að vera í alla nótt og morgun. Komst að því the hard way að regnhlífin mín er of lítil enda er ég eins og ég hafi dýft handleggjunum og löppum upp að hné ofan í baðkar. Taskan mín er líka rennandiblaut með tilheyrandi blautri skólabók. Algjört must að kaupa stærri regnhlíf í dag.
Eins og áður sagði keypt ég síma í fyrradag. Ég laug að þeim að ég byggi á heimavist skólans og það gæti hafa reddað mér. Eða ekki. Þeir voru samt ekki fáanlegir til að senda reikninginn á póstkassann minn í skólanum svo bréfberinn mun bara henda honum fyrir utan seminar house 2! Jæja, ég fæ hann Kristófer til að pikka hann upp fyrir mig þangað til ég læt breyta heimilisfanginu þegar ég fæ alien registration kort.
Annars er þetta ágætis sími, frekar leiðinlegt stýrikerfi á honum finnst mér en hann er hlaðin allskonar fídusum. 2ja megapixel myndavél, texta scanner, e-book support og SD memory card slot svo eitthvað sé nefnt. Hérna er svo hægt að skoða skrímslið betur, minn er svona blár, meira dökkblár eins og til vinstri heldur en stóra myndin. Reyndar finnst mér hann töluvert flottari að sjá í alvöru en á myndunum. Kóngablár og allur svaka shiny svo það fari ekki fram hjá neinum hvað ég er mikill bling bling gaur.
Helgin var frekar róleg. Föstudagskvöldið fór í sjónvarpsgláp hjá Dóra og að horfa á súkkulaðistrákana í Point Break á DVD. Tók laugardaginn snemma og kíkti í sento sem ég fann í götunni minni með strákunum. Mjög heppinn þar finnst mér, gott að hafa þetta í næsta nágrenni. Það var ekki á mörgum hæðum eins og í Kyoto en ekkert minna engu að síður. Rafmagnspotturinn var líka á sínum stað en ég var í nógu miklu stuði fyrir svo ég lét hann vera.
Kíkti aðeins til Osaka á sunnudeginum, aðallega í þeim tilgangi að finna sérstaka Capcom útgáfu af Famitsu Weekly sem er stærsta leikjatölvublað Japans. Ástæðan fyrir kaupunum var demo af einum af eftirvæntingamestu leikjatölvuleikjunum í dag, Resident Evil 4 fyrir GameCube, sem fylgdi blaðinu. Þetta demo er Japan exclusive, sem þýðir að það er einungis fáanlegt hér og einungis með þessu blaði. Eftir þónokkuð mikla leit fann ég þetta í tölvuleikja- og módeldeild verslunar í vægast sagt risa verslunarhúsnæði í Umeda hverfi. Labbaði út með 5 eintök af blaðinu, en ég var fenginn til að kaupa fyrir vini mína líka, lét mér nægja eitt blað fyrir sjálfan mig. Þrátt fyrir að hafa ekki tekið GameCube tölvuna með mér til Japan þá var þetta eitthvað sem ég ætlaði ekki að láta framhjá mér fara.
Kynntist svo tveimur stelpum á laugardeginum í skólanum. Sat í mesta sakleysi mínu í student lounge-inu og hékk á netinu í laptopnum mínum. Komu þar aðvífandi tvær japanskar og spurðu hvort þær mættu setjast við borðið mitt. Ég sagði að það væri sjálfsagt og hélt áfram surfa netið. Það var að sjálfsögðu nóg af borðum og stólum á lausu allt í kring svo ég hefði kannski átt að fatta það að til stæði að hafa samskipti við útlenska dýrið. Freshmen stelpur komst ég að, 19 ára gamlar og önnur var rosa sæt fannst mér. Eftir örlítið vandræðalegt spjall ákváðum við að fara og fá okkur að borða og var 'natto' eitt af fyrstu umræðuefnunum með matnum. Fyrir þá sem ekki vita er natto gerjaðar baunir og þykir mörgum japönum hið mesta lostæti auk þess sem það þykir rosalega hollt fæði. 95% útlendinga finnst það hinsvegar viðbjóður og reyndar er það ekkert voðalega vinsælt í Osaka skilst mér. En Japanir eru ólmir í að bjóða útlendingum upp á þetta, kannski svipað og hákarlinn heima. Allavega, þessi sæta bauðst til að koma með natto handa mér í skólann til að leyfa mér að smakka. Ég tók því boði en þó með þeim fyrirvara að mér gæti þótt það vont og ekki borðað það allt.
Til stóð að hitta þær á mánudeginum og var ég því ekkert að fá hjá þeim gemsanúmerin enda ekki kominn með síma sjálfur. Einhver misskilningur hefur svo verið með tímasetninguna en mér skildist á þeim að þær ætluðu að vera í student lounge-inu frá klukkan 16 til 19 svo ég fór með góðri samvisku að kaupa síma beint eftir skóla. Þegar það var loksins búið klukkan rúmlega 18 dreif ég mig upp í skóla til að hitta á þær, en þær voru ekki á staðnum.
Það er því málið að gerast dáldið lounge lizard næstu daga til að hitta þær aftur og útskýra ruglinginn.
Svo ég útskýri aðeins þetta með að blogga úr gemsa (héreftir kallað gBlogg eða globb) þá er hugmyndin ekki að gera það að föstum lið. Bæði tekur langan tíma að skrifa það og svo eru engir íslenskir stafir náttúrulega og því leiðinlegra að lesa það. Munið þó hugsanlega sjá fleiri globb færslur í framtíðinni ef ég vil endilega tjá mig um eitthvað en kemst ekki í tölvu, svipað og þegar ég fór til Kyoto yfir helgi. Svo þurfið þið ekki að hafa áhuggjur yfir því að ég sé að eyða stórfé í að fara á blogspot síðuna gegnum símann, sendi einfaldlega færslurnar sem e-mail á sérstaka blogspot addressu.

<< Home