Watashi no supiikingu patonaa
Sjúklegur hiti í gær, 33°C, og veðurscriptið mælti lög, "Feels like 38°C" og raki var um 64%! Svo um hádegisbilið var komið heljarinnar þrumuveður og ekki datt mér í hug að taka með mér regnhlíf í góða veðrið um morguninn.
Endurheimti mikinn lúxus í gær, það er heita vatnið í íbúðina mína. Búið að vera heitavatnslaust í meira en viku, svo ég hef farið í ískaldar sturtur eða látið þvottapokann bara duga. Þurfti að koma mér upp sér öndunartækni til að lifa af köldu sturturnar. Ég skildi nú ekki nema brot af því sem viðgerðamaðurinn sagði en skildist á honum að það hefði ekki þurft mikið meira til að en kveikja á einhverjum takka inni og/eða fyrir utan íbúðina.
Ég er búinn að fá upplýsingar um speaking partner-inn minn. Það er stelpa að nafni Hamada Sayaka (fjölskyldunafnið fyrst að japönskum sið) og er hún fædd '83 eins og ég. Það sem meira er að hún er tvíburi og systir hennar er líka í skólanum. Gæti valdið ruglingi ef maður rækist á systur hennar á skólalóðinni. Það er planaður fundur með speaking partner-num manns í skólanum í kvöld og verður spennandi að hitta hana. Vona að hún sé hress og skemmtileg og ófeiminn við að tala ensku. Margir Japanir hérna sem eru algjörir töffarar á japönsku en fara alveg í kleinu þegar þeir ætla að tjá sig eitthvað á ensku. Japanarnir hafa verið að læra ensku í 7-8 ár flestir en geta varla komið út úr sér heilli talaðri setningu, eða eru feimnir við það að minnsta kosti. En auðvitað er hugmyndin að æfa japönskuna og eignast vin í leiðinni.
Það er svo planið að kíkja eitthvað til Osaka um helgina. Hef mikinn hug á að skoða gríðarstóra og flotta 40 hæða byggingu sem kallast Umeda Sky Building. Hún hefur að geyma svokallað "floating garden observatory" á milli tveggja turna og á útsýnið þaðan að vera stórkostlegt. Svo er líka einhver svaðaleg virtual reality sýning í toppnum á öðrum turninum. Lyfturnar eru víst heldur ekki fyrir lofthrædda en þær eru utan á byggingunni og alveg glærar ef minnið bregst ekki.
Á mánudaginn er svo almennur frídagur, eða Respect-for-the-Aged Day svo þetta verður löng helgi hjá mér. Held mér hafi líka tekist að plata einhverja af strákunum til að kíkja á old-school hardcore (hardcore danstónlist, ekki rokk) djamm í Osaka á sunnudagskvöldinu.
Gleymdi svo alveg að segja frá hreint frábærum eftirrétti sem ég fékk á indversku veitingahúsi í Kyoto á föstudeginum. Grænar pönnukökur með steiktum kókos inni í og rjómi til hliðar. Þvílíkur unaður! Og við erum að tala um alveg eiturgrænar pönnukökur, þegar ég sá þær í matseðilnum varð ég bara að prófa þær. Ég er líka forfallinn kókos fíkill svo þetta gat ekki annað en verið gott. Vissi þó ekkert hvað væri inni í þeim þegar ég pantaði. Strákarnir fengu nú samt að smakka og voru held ég allir sammála um að ég hefði vinninginn í eftirréttunum.

<< Home