Ze rulez!
Í Japan eru hin ýmsu boð og bönn, skrifuð sem óskrifuð og ætla ég aðeins að snerta á þeim.
Byrjum á ruslinu. Að henda rusli hér felur ekki bara í sér að troða bara einhverju ofan í poka og henda því í næstu tunnu. Það er gríðarleg endurvinnslu vitund hjá japönum og því er allt endurunnið sem hægt er. Allt rusl verður að vera í glærum plastpokum svo hægt sé að sjá innihald þeirra, til að tryggja að enginn sé að svindla eitthvað. "Venjulegu" rusli er hægt að henda einungis tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum í Gotenyama (mismunandi dagar eftir hverfum). Það verður að vera sett á fyrirfram ákveðna ruslastaði fyrir klukkan 09:00 á morgnana.
Dósum og flöskum skal henda fyrsta og þriðja föstudag hvers mánaðar. Þetta þýðir að ég er kominn með tvo ruslapoka með dósum fram á svalir hjá mér! Einhverjir spes dagar eru fyrir blöð líka en af einhverri ástæðu hef ég ekki upplýsingar um það. Ef henda á raftækjum eða einhverju stóru (t.d. kodda og öllu stærra) verður maður að hringja spes í ruslafyrirtækið og panta tíma hjá þeim. Þeir koma svo og ná í ruslið gegn greiðslu. Það má engu stóru henda í Japan án þess að borga fyrir það.
Mikhael er reyndar alveg að snúa á kerfið, hann stelst alltaf með ruslið sitt í ruslafötu McDonalds veitingastaðs sem er nálægt honum í Kyoto.
Svo ég komi aðeins að óskrifuðu reglunum hérna þá er það álitið afskaplega dónalegt að borða og drekka á ferð og utandyra almennt. Bekkir í görðum, lautarferðir og annað slíkt er að sjálfsögðu undanskylið. Þrátt fyrir að það sé sjálfsali á hverju einasta götuhorni þá sér maður aldrei neinn vera að drekka neitt utandyra, ekki nema hann stoppi og klári drykkinn fyrir framan sjálfsalann. Þetta kemur sér afar illa fyrir svefnpurku eins mig sem finnst best að borða morgunmatinn á leiðinni í skólann. Ekki vil ég vera dónalegur upp í opið geðið á innfæddum. Ég er nú samt óhræddur við að drekka labbandi á sólríkum degi enda finnst mér það eiginlega bara sjálfsagt.

<< Home