4-deck onsen on fire
Typhoon-inn sem reið yfir Japan með eyðileggingu og mannfalli á miðvikudegi og fimmtudegi var sá mannskæðasti í að minnsta kosti áratug en það hafa hingað til fundist 71 manns látnir og margra er ennþá saknað. Búinn að sjá þau nokkur húsin í sjónvarpsfréttunum sem eru bara eins og tannstönglahrúga eftir lætin.
Eyddi síðustu tveimur dögum í Kyoto og nærliggjandi bæ. Á fimmtudagskvöldinu stóð til að fara að sjá meistara Jeff Mills, sem ku vera besti teknó DJ í heimi að margra mati. Dóri og Siggi fóru fóru frekar snemma til Kyoto á meðan Mikhael var hjá mér í heimsókn í góðu chilli. Reyndum að leggja okkur fyrir djammið til að þrauka út nóttina en það gekk ekkert þrátt fyrir töluverða þreytu. Fórum svo klukkan 10 um kvöldið á frábæran veitingastað í Kyoto sem Mikhael langaði til að prófa. Bara sá besti matur sem ég hef fengið síðan ég kom hingað. Sögðum bara þjóninum að við værum svangir og að hann mætti velja fyrir okkur. Hann færði á borð hvern smáréttinn á fætur öðrum sem var hver öðrum betri. Svo spurði hann okkur hvernig maginn á okkur væri eftir nokkra, og við sögðum bara keep it coming. Einn rétturinn þar var í miklu uppáhaldi en það voru einskonar samanvafðir kálbögglar með smá kjöti inni í, ostbita og dressingu. Minnti dáldið á sesarsalatsbragð, en það hefur líklega verið dressingið. Pöntuðum það tvisvar, enda algjör veisla fyrir bragðlaukana. Þessu var svo skolað niður með bjór og sake.
Jeff Mills var svo feikna öflugur, techno DJ frá hjarta teknósins í USA, Detroit. Hann var mað 4-deck geðveiki í gangi auk þess að stjórna visual hliðinni líka sem hann skeytti reyndar töluvert inn í músíkina, eða semsagt hljóðinu á visulunum ef eitthvað var. Klúbburinn, Club Metro í Kyoto, var reyndar alveg afkáralega lítill sem mér fannst koma soldið að sök því það var varla hægt að hreyfa sig þarna.
Gengið svaf svo heima hjá Mikhael í Kyoto sem var líka svo örlátur að splæsa í heit og gómsæt bento (matar(nestis)box) handa hverjum manni morguninn eftir. Skrópaðum í skólanum fyrir Millsarann en það var ekkert hræðilegt því ég er bara í tveimur tímum á föstudögum. Fljótlega eftir síðbúinn morgunmat var ferðinni heitið til Kurama sem er bær nálægt Kyoto þar sem halda átti árlega eldhátíð um kvöldið. Þið sem sáuð myndirnar hans Sigga (nei, ekki Sigga Magga sem er hérna) munið kannski eftir að hafa séð myndir frá hátíðinni í fyrra þegar hann var búsettur í Kyoto. Kurama er ótrúlega fallegur staður, bara nánast eins og að fara aftur í tímann því húsin eru flest öll í gamla stílnum og náttúrufegurð er mikil með mikið af skógi í kring. Þegar þangað var komið fórum við í úti onsen, en onsen eru laugar (heitir pottar í rauninni) sem tengjast hverum hérna í Japan. Onsen-ið var bara eins og eitthvað pantað fyrir bíómynd með vel hirtum gróðri í kring og litlu fallegu tréi með dökkrauðum laufum og fallegu útsýni upp í skógi vaxnar hlíðarnar.
Eldhátíðin sjálf var hálfgerð vonbrigði þar sem það var svo rosalega mikið af fólki mætt til að sjá hana. Maður mátti hvergi stoppa til að horfa á heldur labba í stöðuga hringi á sérstökum göngubrautum í gegnum mannþvöguna. Hátíðin gengur út á að menn beri risakyndla upp og niður aðalgötuna og svo að lokum upp að hofi staðarins. Meðfram öllum götum eru svo pottar með eldi í og stórir bálkestir víðsvegar líka og og er þetta eina götulýsing meðan á hátíðinni stendur. Svo eru náungarnir sem bera kyndlana í sérstökum búningum í gamla stílnum og allir eru þeir í einskonar þveng, ekki ósvipað því sem súmókapparnir eru með upp í rassinn. Við sáum frekar lítið af þessu, en urðum vitni að frekar mörgum litlum krökkum sem voru að þramma uppdressað með litla kyndla með foreldrum sínum eða fjölskyldu og kyrjandi í sífellu eitthvað chant sem þessu fylgir. Fengum nóg í kringum klukkan 19 og drifum okkur bara heim. Hef aldrei komið í jafn troðna lest á ævi minni, en lestarverðirnir voru alveg að troða fólki inn í hana eins og maður hefur séð í einhverjum grín videoklippum á huga.is. Var reyndar svo heppinn að ná sæti sjálfur.
Þegar við komum aftur til Kyoto fórum við á Tælenskan veitingastað sem var hreint afbragðsgóður. Fengum alveg 5 réttaða máltíð sem deildist á hverjar tvær manneskjur. Þetta var alveg logsterkt flest allt svo það fór að leka hressilega úr nefinu á manni við að borða þetta auk þess sem sumir voru orðnir eldrauðir í framan. Kvöldið endaði svo á nokkrum skemmtilegum billjarðleikjum áður en haldið var í lest heim til Gotenyama.
Lag vikunnar er svo Black Cherry með Goldfrapp. Munið bara að hægri smella og velja "Save target as" ef vafrinn vill bara spila þetta fyrir ykkur en ekki save-a.

<< Home