Cherry blossom anchorman
Helginni var kickstartað með vettvangsferð til einnar stærstu sjónvarpsstöðvar Kansai svæðisins, KTV, Kansai Terebi eða television eins og þeir segja upp á enskuna. KTV er dótturstöð Fuji TV í Tokyo sem er í eigu eins af fimm stóru fjölmiðlarisanna í Japan. Ferðin var hluti af áfanganum Making the News in Japan og fór góður hluti bekksins ásamt kennara að skoða höfuðstöðvar KTV í Osaka.
Bygginging sjálf er gríðarflott, menn virðast alveg keppast um að gera þessar stóru fyrirtækjabyggingar soldið óvenjulegar hérna. Ferðin byrjaði vel, ca. 10 reception kvensur í uniform voru að horfa á okkur útlendingina bakvið móttökuborðið og flissandi eins og smástelpur. Þær gætu hafa verið bara að hlæja að þessum einkennilegu útlendingum, en ég vil halda að þeim hafi þótt við strákarnir svo ferlega sexy.
Nú við fengum að skoða öll stúdíóin í byggingunni ásamt því að horfa á local fréttatíma stöðvarinnar í beinni útsendingu bakvið myndavélarnar. Eftir á var svo spurningatími með þremur fréttamönnum af stöðinni sem hafa unnið eitthvað utan Japans og þeir spurðir spjörunum út. Því miður voru þeir einkar slappir í enskunni og því fóru mörg svörin út í algjöra vitleysu vegna þess að þeir annaðhvort skildu ekki spurningarnar eða kunnu ekki að svara þeim fullnægjandi á ensku. Einna fyndnast við ferðina var konan sem sýndi okkur stöðina en hún var stöðugt að minna okkur á númer hvað stöðin væri. Hún var t.d. að segja okkur frá þætti sem ætti að sýna live í fyrramálið og sagði að við gætum að sjálfsögðu séð hann með því að stilla okkur inn á stöð..... Og svo beið hún alltaf eftir að allur hópurinn segði "8!". Semsagt, KTV er channel 8 svo það fari ekki framhjá neinum. Þetta gerði hún við hvert tækifæri sem bauð upp á það.
Hún bað okkur líka um að vera mjög stillt og hljóð, annað en mexíkanarnir sem var síðasti skoðunarhópur á undan okkur. Þeir voru víst hræðilega háværir ásamt því að eitthvað par fór bara að kela bakvið í einu stúdíóinu.
Síðast en ekki síst sá ég stærstu lyftu sem ég hef séð á ævi minni. Það var bókstaflega hægt að koma stórum trukki með aftanávagni inn í hana. Átti bara von á að Gojira sjálf myndi labba út þegar risa hurðin 'slammed open'.
Eftirá fór ég út að borða í Osaka með nokkrum krökkum úr ferðinni og svo heim í anime gláp.
Laugardagurinn var frekar letilegur. Horfði á Nóa Albínóa sem familían heima var svo góð að senda mér. Góð mynd það. Tók reyndar til í herberginu mínu og er því mjög feginn núna því það kom tilkynning í gær frá Hirano, eiganda byggingarinnar að hann ætlaði að gera klósett, ískáps, loftkælingartékk í dag ásamt "lifestyle" check. Ekki veit ég alveg hvað hann á með því, en það verður gaman að sjá þegar ég kem heim hvort hann hafi farið í gegnum ruslið mitt og ráðleggi mér eitthvað betra mataræði. Hann sagði okkur líka að "check your belongings" því hann fer bara inn hvort sem við erum heima eða ekki og höfum við Dóri smá áhyggjur að honum eigi eftir að taka fartölvurnar okkar traustataki eftir þessa setningu hans.
Á laugardagskvöldinu fórum ég, Dóri og Siggi á izakaya stað, en það eru staðir þar sem maður borðar ýmsa smárétti og drekkur mikið áfengi með. Semsagt ódýr og góður matur og bjór og ekkert verið að ætlast til þess að þú drullir þér út eftir klukkutíma. Ekki í fyrsta skipti á þannig stað en það er mjög gaman á þeim og mikil stemning í fólki á nærliggjandi borðum.
Eftir að allir voru orðnir mettir var farið í Karaoke. Okkur til mikillar furðu fundum við Stick'em Up með Quarashi í laga bankanum og að sjálfsögðu var því skellt á fóninn. Keyptum okkur 'all-you-can-drink' aðgang í góðri trú þangað til eftir karaoke-ið var okkur tjáð að bjórinn væri EKKI hluti af þessum a-y-c-d taxta því hann væri svo vinsæll. Vorum alveg gáttaðir á þessu, sérstaklega vegna þess að við fórum á þessa sömu karaoke keðju í Kyoto og það var engin svona regla í gangi þar. Reikningurinn var því umtalsvert hærri en gert var ráð fyrir og áttum við ekki fyrir herlegheitunum eftir allt saman. Ég var snöggur að hugsa og henti Dóra yfir afgreiðsluborðið og tók á rás niður stigann en löggan beið fyrir utan og var ég skotinn niður með gúmmíkúlum þegar ég reyndi að brjótast í gegnum lögreglubílana.
Nei, við sögðum bara 'sumimasen' eins og aumingjar og sögðumst ekki eiga fyrir reikningnum. Sem betur fer var ekki tekið mjög illa í það (minnir mig) og fengum við að borga það daginn eftir.
Vorum eiginlega of drukknir eftir karaoke-ið til að gera mikið meira svo ég knúsaði bara koddann þegar ég kom heim.
Plataði hann Jeff vin minn til að hjálpa mér aftur með vandræðagemsann á fimmtudeginum. Fór í Vodafone verslun til að fá mail-ið mitt lagað en þeir vildu bara taka hann í viðgerð. Ég er semsagt núna með ótrúlega crappy lánssíma frá þeim sem er að minnsta kosti 2-3ja ára gamalt model. Ég hélt að stýrikerfið á mínum væri pínu pirrandi, en þetta slær allt sem ég hef prófað út. Jæja, get allavega séð þau e-mail sem síminn minn tekur á móti. Fannst nú eiginlega að þeir ættu bara að gefa mér nýjan síma, þeim munar ekkert um það hugsa ég.
Meiri gemsapirringur. Var að skoða í gegnum Vodafone bækling á ensku og rek augun í "documents required for application". Þar stendur rauðum stöfum að engin gögn séu nauðsynleg fyrir kreditkortaborgun. Ég borgaði semsagt helmingi meira fyrir símann minn, laug að ég byggi annarsstaðar en ég bý og var gemsalaus nokkrum dögum lengur vegna þess að einhver bakayaro (hálfviti) í hinni búðinni ákvað að kredikortið mitt væri no good í Japan.


<< Home