GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

föstudagur, október 08, 2004

German green

Jæja, eitthvað eru hlutirnir hérna að róast niður og því minna að skrifa um en venjulega. Túristbrumið að fara af manni svo margt sem manni fannst áður skrítið er orðið ósköp eðlilegt. Það er þó nóg að sjá og upplifa í Japan svo þið þurfið ekki að örvænta.

Náði í gemsann minn úr viðgerð á miðvikudeginum. Mjög feginn því og kann eiginlega að meta hann miklu betur eftir að hafa verið með lánsdraslið. Fékk þennan ágæta yamaha bol líka að gjöf fyrir þessi leiðindi. Þið getið nú vandræðalaust sent mér e-mail í símann minn ef ykkur liggur eitthvað mikið á hjarta eða langar að kasta á mig kveðju. E-mail-ið er gummi (hjá) k.vodafone.ne.jp . Set þetta '(hjá)' til að koma í veg fyrir að spam forrit picki upp mail-ið. Athugið að skrifa enga sér-íslenska stafi eða kommur yfir stafi, þeir hverfa einfaldlega úr póstinum þegar hann kemst í símann minn. Ekkert vera að senda mér myndir með e-mailum til að byrja með því það kostar mig að ná í stór e-mail, en veit þó ekki hversu mikið. Ef ég kemst að því að það er ódýrt þá læt ég ykkur vita.
Var búinn að minnast á net-tengingunu sem var væntanleg heim fyrir mánaðarmót en hún er ennþá ekki komin í gagnið. Nýjasta loforðið er næsta vika, en það kæmi mér ekki á óvart ef það yrði ekki fyrren snemma í þarnæstu viku.

Fyrir svona tveimur vikum síðan settist hliðina á mér frekar creepy japanskur gaur í tölvuveri skólans. Hann byrjaði á því að koma með einhverja bullshit sögu um að hann væri ekki búinn að fá notendanafnið sitt fyrir tölvurnar ennþá og spurði hvort hann mætti nota notendanafnið mitt. Ég hélt nú ekki og sagði að það væri af og frá. Hann þráaðist við og hélt áfram að útskýra stöðu sína og spyrja mig. Þegar hann loksins gafst upp á því spurði hann mig hvort ég ætti einhvern pening og hvort ég gæti lánað honum. Þvílík bjartsýni!
Ástæðan fyrir því að ég mundi eftir honum er sú að hann er staddur hérna aftur og er að spyrja fólk að þessu nákvæmlega sama, að fá að komast í tölvu á notendanafni einhvers annars. Hann er hreinlega búinn að ganga á röðina og allir búnir að neita honum. Sé samt núna að honum hefur tekist að plata eitthvað grey til að hleypa sér í tölvu. Er nokkuð viss um að þessi náungi sé ekki nemandi í þessum skóla og er að velta því fyrir mér að láta þá vita af þessu á skrifstofunni.

Kíkti í heimsókn til Mikhaels í Kyoto á þriðjudeginum. Ætlaði að pre-order-a tölvuleik þar fyrir félaga minn í USA til að fá pre-order bónusinn með en mér tókst ekki að gera mig skiljanlegan við starfsfólkið. Í búðinni var hávær tónlist, brjálaðir og háværir tölvuleikir í gangi og afgreiðslumaðurinn talaði alveg rosalega lágt svo ég skildi nokkurn veginn ekki neitt hvað hann sagði. Kíktum svo á indónesískan veitingastað og svo í sento sem er nálægt húsinu hans Mikhaels. Bakvið afgreiðsluborðið tók á móti okkur elskuleg gömul kona en afgreiðsluborðið var mitt á milli karla og kvennaklefanna, með engu skilrúmi á milli. Maður þurfti semsagt að hátta sig næstum beint fyrir framan kellinguna sem horfði á sjónvarpið í karlaklefanum allan tímann. Ekkert sem ég kippti mér upp við samt.

Hreint rosalegar monsoon rigningar hér í Japan. Maður skilur hvers vegna næstum hver einasta gata og hús hafa vatnsrennur í jaðrinum. Hellirigning í dag sem er líklega útaf typhoon númer 22 sem er að nálgast Japan. Hann munn skella á að fullu á morgun og samkvæmt spá mun hann fara beint yfir Osaka svæðið. Getið séð myndir af áætlaðari leið typhoonsins hér og hér. Fyrir þá sem ekki vita hvar Osaka og Osaka prefecture eru þá er það á vinstri hluta svæðisins sem er innan í 0903UTC hringnum á fyrri linknum. Maður gæti því miður þurft að halda sig innandyra allan morgun daginn og gæti það eyðilagt helgarplönin. Það rigndi líka mikið á þriðjudaginn en sem betur fer fór ég þá í stórmarkaðinn Life (raifu) og keypti mér stærstu regnhlífina sem hægt var að kaupa þar. Ég er að mestu þurr núna þökk sé henni.

Þriggja daga helgi framundan, frí á mánudaginn vegna Sports and Health day. Já frídagarnir hérna eru ansi fjölbreyttir verður að segjast. Þeir eru líka með alveg hreint frábært frídaga kerfi hér í Japan, ef frídagur lendir á helgi þá kemur hann bara á mánudeginum í staðinn. Svona á þetta að vera!
Það er ýmislegt planað um helgina. Í Umeda Sky Building í Osaka verður eitthvað rosa bjórfestival haldið á laugardagskvöldinu og eru íslendingarnir hérna allavega vel heitir fyrir því. Loksins kemur maður sér í að skoða þessa áhugaverðu byggingu. Það verður líka flott að sjá útsýnið úr byggingunni að kvöldi til, gæti verið flottara en á daginn. En eins og áður sagði þá gæti vel verið að það verði ekkert úr þessari bjór hátíð vegna typhoonsins... Bögg.
Jeff er svo búinn að bjóða mér og nokkrum öðrum í karaoke með speaking partner stelpunni sinni ásamt vinkonum hennar á sunnudaginn. Það verður fyrsta skiptið í karaoke með japönum svo það ætti að verða áhugavert. Spurning hvort maður þori að gera sig að fífli með einhverju gauli ef þetta eru einhverjar svaka skvísur.
Annars fara miðannarpróf á fullt í næstu viku svo það fer eitthvað af helginni í að læra fyrir þau.

Meðan ég man, gamla Star Wars trilogían er komin út á DVD. George Lucas hefur nú enn einu sinni skitið á sig upp á bak með því að gera breytingar og "lagfæringar" á myndunum. Það væri svosem ekkert að því ef hann myndi gefa okkur færi á að sjá myndirnar í sínu upprunalega formi með því að hafa báðar útgáfur á sama disknum og nota "seamless branching" tækni til að skeyta inn og út atriðum. En nei, Goggi vildi það ekki og hafði meira að segja gefið út þá yfirlýsingu fyrir löngu síðan að upprunalega útgáfurnar myndu aldrei koma út á DVD. Hann sagði reyndar líka á sama tíma að gömlu myndirnar kæmu aldrei á DVD fyrren allar þær nýju væru komnar út. Fyrir utan þetta eru mjög pirrandi mistök í mixinu á 5.1 hljóðrásinni á A New Hope hef ég lesið. Eina vonin sem er eftir er að við fáum loksins myndirnar gefnar út í upprunalegu formi er þegar þá sá gamli gefur upp öndina. Ég veit ég á samt eftir að láta undan lönguninni einhvern tíman og kaupa mér Star Wars á DVD, hvort sem það verður þetta sett eða eitthvað annað, þrátt fyrir breytingar á myndunum.
Nú settið sjálft er nákvæmlega eins uppsett og Indiana Jones settið. Fín mynd- og hljóðgæði en frekar skimpy á aukaefnið. Skítalykt af þessu og finnst mér bara benda til þess að einhver ofur DVD pakki komi út fyrr eða síðar. Annars hefur George Lucas fyrir löngu gefið aðdáendum Star Wars myndanna puttann og sýnt hvað hann er fégráðugt fífl auk þess sem hann kann hvorki að leikstýra né skrifa handrit sjálfur.Þeir félagar á Penny Arcade.com gerðu ágætis comic strip um Gogga og þetta nýja sett hans.