GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, október 20, 2004

Killer no. 23

Búið að vera sannarlega snarvitlaust veður í dag!
Tímum eftir hádegi var aflýst en það er enn einn typhoon (fellibylur er víst þýðingin samvkæmt mbl.is) að ganga yfir landið. Kom heim alveg tussublautur fyrir neðan hné og ekki lagt út úr húsi síðan þá.
Nokkuð um þrumur og eldingar og þrumurnar svo nálægar að bygging hreinlega nötraði!
Nokkrar þakplötur foknar af þakinu. Crazy. Það hvín líka í öllu húsinu eins og ég veit ekki hvað vegna brjálaðs roks.
Var svo að lesa það á fréttasíðunum að 16 manns hafa nú þegar látist í þessum nýjasta fellibyl sem er sá 23. á þessu ári.

Fyrir utan þetta er loksins farið að kólna í veðri síðustu vikurnar. Hitinn hangir ennþá yfir 20°C venjulega á daginn en er svona 10-15° á kvöldin. Svo það er ekki alveg hægt að vera bara í stuttermabol úti á kvöldin lengur.