GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, október 19, 2004

Milk money

Sumt við Japan lífið í Japan getur verið pain in the butt fyrir útlending.
Byrjum á bankakerfinu. Það er gjörsamlega ómögulegt að taka út pening með útlensku korti nema í sérstökum pósthúshraðbönkum sem eru opnir styttra en venjulegir hraðbankar. Reyndar loka langflestir hraðbankar klukkan 21 og eru lokaðir á sunnudögum og frídögum. Mætti halda að það væri gaur inni í hraðbankanum sem þyrfti að fá hvíld á milli vakta og sína frídaga. Stórfurðulegt. Pósthúsin í Japan eru ríkisrekin og þjóna ekki bara sem pósthús heldur líka sem einn stærsti banki Japans auk þess að selja tryggingar.
Að neyðast til að leita uppi þessa pósthúshraðbanka kæmi ekki að sök ef hægt væri að borga með korti í búðum, en 95% af öllum búðum taka ekki kort. Svo má líka minnast á það að ekki einn einasti banki í Japan er með tölvukerfi að mér vitandi. Japan er alveg í steinöldinni með alla svona þjónustumiðaða tækni þó svo öll neytendatækni sé mjög þróuð.

Eins og margir vita þá drekk ég ágætlega mikið af mjólk. Síðan ég kom til Japan hef ég hinsvegar ekki dreypt svo mikið sem eitt glas af mjólk. Helsta ástæðan fyrir því er hversu vond mér finnst mjólkin hérna. Langflestar tegundir eru fituskertar og unnar í þeim tilgangi að lengja endingartíma þeirra. Niðurstaðan er einstaklega sterkt sojabragð þó svo mér sé ekki kunnugt um að neinar sojabaunir séu í mjólkinni. Mjólkin sem er sem minnst meðhöndluð er hinsvegar alltof feit fyrir minn smekk, en hún er vel feitari en Nýmjólkin heima, sem smakkast eins og rjómi fyrir mér. Spurði meira að segja Umezawa-sensei, fyrrverandi japönskukennarann minn heima ráða og kom hennar hjálp að miklu gagni þrátt fyrir að mér hafi ekki tekist að finna drekkandi mjólk ennþá. Fann reyndar frekar góða mjólk í flösku í sento-i í Kyoto, en hvergi séð hana selda í búðum.
Reyndar sakna ég mjólkurinnar ekki svo mikið, langaði aðallega að getað fengið mér eitthvað morgunkorn á morgnana með mjólk.

Gott smjör tókst mér þó að finna í annarri tilraun og hefur það reynst vel á bagette brauð og maískólfa hingað til.

Brauð er ekki ýkja vinsælt í Japan en valið stendur á milli fransbrauðs, fransbrauðs og fransbrauðs í öllum verslunum og bakaríum. Þetta er líka fransbrauð af mýkstu gerð, alveg eins og svampur viðkomu (skorpan líka) og eflaust uppfullt af rotvarnarefnum. Reyndar hef ég fundið aðeins grófara brauð (allavega brúnna) en það er af mjög skornum skammti og allt í þessu ofur svampformi.