Partýblöðrur
Djöfull, ég er kominn með blöðru á ilina eftir að hafa labbað eins hratt og ég gat í skólann í morgun berfættur í blautum sandölum. Og þeir voru illa hertir en ég hafði ekki tíma til að stoppa og herða þá.
Það var nebblega hellirigning í dag og ég var búinn að fá nóg af því vera í blautum skóm sem þorna ekki fyrren eftir 2 sólarhringa.
Djöfull er óþægilegt að vera með svona drasl á ilinni.
Skilaði inn mid-term take home exam í Body & Communication í dag. Ótrúlega leiðinlegt og morkið að vinna það. Hef ekki nokkurn áhuga á viðfangsefninu þó svo manni leiðist í sjálfu sér ekkert í tímunum sjálfum.
Svo mæli ég með að fólk tékki á þessum teaser trailer. Hann sýnir reyndar ekki neitt úr myndinni sjálfri eins og algengt er með teaser-a, en hann er samt cool. Ætla samt ekki að segja ykkur hvaða mynd þetta er, verðið bara að ná í þetta og tékka á því! Hann er á þessu leiðinda .mp4 format-i sem engum dettur í hug að nota nema einhverjir Apple hipsters svo hann spilast eingöngu í Quicktime eða VLC Media Player á PC. Hann er reyndar 10x flottari í VLC, ekki jafn upplýstur og ótrúlega washed-out eins og í Quicktime, af hverju það er veit ég þó ekki. Nálgist VLC á íslenskum server hér. Mjög góður media player það þó svo hann sé kannski ekki með besta viðmótið. En hann getur spilað nokkurn veginn allt án þess að hafa nein codec instölluð fyrir.

<< Home