GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, október 12, 2004

U can't touch this

Helgin var ágætlega heppnuð, enginn typhoon lét sjá sig í Osaka þrátt fyrir spár. Hann hefur farið einhverja aðra leið eftir allt saman þó ég botni ekkert í því.

Kynntist Japönskum gaur á föstudeginum. Sat í skólanum að gera heimaverkefni þegar hann kom upp að mér og spurði hvort hann mætti spyrja mig nokkurra spurninga í sambandi við verkefni sem hann væri að gera. Ég var til í það. Spjölluðum síðan dáldið eftir það og skiptumst að lokum á númerum og e-mailum. Ágætis strákur virtist vera þó mér hafi ekki litist á tónlistarsmekkinn hans. Allur í Green Day, Sum 41, Avril Lavigne, Blink 182 og fleira ógeðslegt háskólarokk. En af því sem ég hef kynnst hér virðist þetta vera svona það sem er hvað vinsælast í vestrænni tónlist hjá ungu fólki í Japan. Grátlegt finnst mér.
Eiginlega í fyrsta skipti sem ég tala við japanskan gaur hérna. Flestir eru of cool eða öllu heldur of feimnir til að tala við skiptinemana, eða hafa hreinlega ekki áhuga á því. Næstum bara stelpur sem gefa sig á tal við mann venjulega.

Kíkti frekar snemma til Osaka á laugardeginum með Mikhael og Sigga í för. Tókum nokkuð góðan göngutúr frá Kyobashi til Umeda Sky Building. Komum þar á milli 18 og 19 en festivalið hafði þá staðið yfir frá hádegi. Þar voru teknar veigar um hönd og smá mat með, sjáfur fékk ég mér "jerk chicken" í Jamaica standinum. Það voru semsagt bjórtegundir frá hinum ýmsu heimshornum og öllu skipt niður að mestu leyti eftir löndum. Ég prófaði Kóreskan og Indónesískan bjór og fékk mér þýskan tequila bjór í eftirrétt. Sá Kóreski var án efa bestur og þessi með tequila bragðinu verstur. Mjög furðulegur bjór það. Eini gallinn við þessi hátíðarhöld hvað bjórinn var dýr allur. Allt litlar glerflöskur eða glös á 500 yen stykkið, það er dýrara en venjulegt veitingahúsaverð. Svo ég týmdi ekkert að fá mér mikið meira en þrjá bjóra þarna og mat. Kíktum svo upp í toppinn á Umeda Sky Building, fertugustu og fyrstu hæð, og svo upp á þakið. Stórkostlegt útsýni þar og mjög flott svona að kvöldi til. Alveg ljós eins langt og augað eygir og ansi margar byggingar með rauð blikkandi ljós á mörgum stöðum. Minnti mig ansi mikið á Blade Runner. Osaka er alveg ótrúlega stórt megalopolis. Greinilega vinsæll staður fyrir pör að fara á, ca. 90% af fólkinu þarna voru pör að leiðast og knúsast.

Strákarnir voru svo eitthvað slappir og voru ekkert á því að fara á neitt frekara djamm svo við vorum komnir heim aftur klukkan rúmlega 22. Það kom þó ekki að sök því ég hafði frábæra mynd undir höndum, Zatoichi en þar fer 'Beat' Takeshi Kitano með aðalhlutverk og leikstjórn. Frábær mynd það sem var mjög vinsæl í bíó hérna í Japan í fyrra. Fjallar um blindan nuddara sem hakkar allt og alla í spað með sverðinu sínu. Fannst þessi setning eftir notenda á IMDB vera nokkuð góð og flott lýsing á karakternum: "Takeshi plays his character with an easy going humour that contrasts nicely with his sudden, violent movements at key moments". Hún er þó frekar hæg en með mjög töff anime-style action-i inn á milli þar sem blóðið skvettist úr fólki og sverð geta hoggið steinsúlur og annað í sundur alveg clean. Fín saga og húmor með. Var líka stórhrifinn af tónlistinni í myndinni. Mæli með að allir tékki á þessari ræmu, fæst pottþétt á leigu í Nexus eða Laugarásvideo.

Sunnudagur. Massíft prógram í gangi þar. Jeff sendi mér mail kvöldið áður og sagði mér að farið yrði í karaoke-ið klukkan 13 að degi til. Ég tók andköf. Lét þó plata mig til að fara í karaoke, edrú, eitthvað sem ég hélt að gæti hreinlega ekki gerst. Japönsku stelpurnar voru þrjár og greinilega þaulæfðar karaoke söngkonur. Engar svaka svkísur fannst mér, sem betur fer kannski. Speaking partner-inn hans Jeff var þó sætust. Slapp með einungis þrjú lög, tók tvö lög með Beck og svo MC Hammer. Söng þó ekki fæst lög af öllum þarna. Get lofað ykkur því að MC Hammer sjálfur hefði ekki getað snert mitt performance af laginu hans, svo lélegt var það.
Eftir tæplega þrjá tíma af karaoke vildu stelpurnar að allir skiptu um sæti, aftur. Við útlendingarnir störðum á þær með opinn munninn því við vorum orðnir ansi þreyttir á karaoke söng. Þær höfðu þá hugsað sér að vera alveg klukkutíma eða tvo í viðbót, en við sögðumst ekki treysta okkur í svona maraþon. Þær vildu þó endilega gera eitthvað meira með okkur og var ákveðið að kíkja á veitingastað í Umeda. Siggi og Parker vinur hans Jeff ákváðu þó að drífa sig bara heim. Eftir ágætis mat og nokkuð langt spjall vorum við dregnir í puri kura, en það er svona hálfgerð passamyndamyndataka með hinum ýmsu bakgrunnum og svo er hægt að bæta inn allskonar skrauti í myndirnar eftir á. Það tók slatta mikinn tíma enda þurfti að fara í þrjá bása samtals og svo þurfti auðvitað að skreyta myndirnar vel áður en þær voru tilbúnar til útprentunar. Skrifa inná og bæta inn hjörtum og sápukúlum og fleiru. Þær voru líka svo snöggar að skipta um bakgrunni með spes tökkum í klefanum að það koma oftar en ekki fyrir að við strákarnir sem stóðum aftast fengum mismunandi lituð bakgrunnstjöld yfir hausinn á okkur. Japanskar stelpur eru alveg vitlausar í þetta fyrirbæri. Ég reyni kannski að koma myndum af puri kura-inu á netið einhvern tíman.
Löbbuðum líka framhjá flottasta McDonalds stað sem ég hef séð á ævi minni í Umeda. Allur í burstuðum málmi og það var meira að segja píanisti að spila á flygil, svona hálfur út úr húsini. Fancy. Tók mynd á gemsann.
Var ekki kominn heim fyrren rúmlega ellefu um kvöldið, alveg uppgefinn en fór samt út á videoleigu og náði mér í Mystic River. Hlustaði líka rétt aðeins á byrjunina á commentary hljóðrás disksins með Tim Robbins og Kevin Bacon, hún hljóðaði svo:

R: I'm Tim Robbins.
B: And I'm Kevin Bacon.
R: And we're here to talk about this film Mystic..Pizza.
B: River Tim, river.
R: ...Pizza.
B: Pizza river?