Víraður
Draumirinn rættist í gær, fékk netið loksins heim.
100 megabit no less, þó svo að það sé ómögulegt að komast neins staðar nálægt þeim hraða nema frá serverum innan Japan. Get þó allavega verið með trilljón download í gangi frá útlöndum án þess að bandvíddin minnki á neinu downloadinu þó svo hraðinn sé engan veginn sá sami.
Ætla að reyna að blogga oftar héðan í frá fyrst ég er kominn með netið heim og hafa færslurnar styttri í staðinn. Ætla líka að setja inn smá nýjung á bloggið í tilefni heimanetsins, vikulegt feature sem ég kalla hinu flashy nafn "Lag vikunnar"! Ætla að skella inn a.m.k. einu lagi vikulega á netið, bara tónlist sem ég er að fíla í augnablikinu og mæli með að aðrir tékki á. Þetta verður allt sett á íslenskan server svo þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af downloadi frá útlöndum.
Finnski tónlistarmaðurinn Timo Maas ætlar að eiga fyrsta orðið með lagið sitt Help Me, featuring Kelis. Ætlaði reyndar upphaflega að setja annað lag sem ég er að fíla mikið í augnablikinu en ákvað að skella meira stuðlagi upp vegna þess að það er laugardagur. Fólk getur þá t.d. skellt þessu á fóninn ef það er eitthvað að fara að djamma í kvöld. Getið nálgast lagið hér auk þess sem það verður fastur linkur á lag vikunnar í dálkinum hægra meginn á síðunni. Mæli svo auðvitað með því að fólk pumpi þessu í gegnum alvöru pimp-certified græjur eða heyrnatól í stað einhverra dollu tölvuhátalara.
Ester og Ragga sem voru með okkur í Japönskunni í fyrra kíktu í smá heimsókn til Osaka í gær. Ester er í háskólanum Gakushuin í Tokyo og Ragga er að leita sér vinnu sem enskukennari hérna. Fyrirvarinn var alltof stuttur fyrir þessa heimsókn (ég fékk að vita af komu þeirra klukkan tæplega 17 í gær!) og flestir frekar þreyttir eftir miðannarprófavikuna. Það varð því ekkert skrall úr þessu hjá mér allavega og ég og Siggi drifum okkur bara heim um 11 leytið enda báðir dauðþreyttir og langaði bara heim í okkar nettengingu.

<< Home