GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

sunnudagur, nóvember 21, 2004

Always outnumbered, never outfoxed

Það kom mér algjörlega í opna skjöldu í síðustu viku þegar ég fékk verðlaun fyrir "best skit performance". Þó ég hafi verið nokkuð sáttur við þetta atriði okkar (fyrir utan hvað stelpan í hópnum var afskaplega slakur leikari) þá fannst mér önnur atriði sem voru flutt töluvert fyndnari allavega. En umsagnirnar sem við fengum sögðu flest allar að þetta hefði verið mjög frumlegt hjá okkur auk þess að vera fyndið að sjálfsögðu. Fékk þessa glæsilegu skopparakringlu með bandi að gjöf fyrir frábæra frammistöðu.

Atriðið var grín af Winter Sonata sem er án vafa vinsælasta sápan í Japan í mörg ár en hún er Kóresk og hefur aðalleikarinn, Youn-sama, orðið geysivinsæll meðal japanska kvenpeningsins. Það er meira að segja heil búð undir Winter Sonata collectables í Osaka.

Mætti í skólann aftur klukkan 17:30 á föstudeginum til að horfa á mynd. Geri aðrir betur. Sá heimildarmynd að nafni Outfoxed: Rupert Murdoch's War on Journalism sem fjallar um fréttastöð Fox sjónvarpsrisans og hversu rotið það apparat er. Algjör heilaþvottur í gangi þar og beinlínis áróðurstól repúblikaflokksins í Bandaríkjunum. "Only 214 days until Bush gets re-elected!" Og til að toppa allt er mottó sjónvarpsstöðvarinnar "Fair & Balanced"....sheesh. Mjög áhugaverð og frekar fyndin á köflum, mæli með að fólk finni þessa á leigunni. Eitt besta comment myndarinnar kemur án vafa frá apanum og sjónvarpsmanninum Bill O'Reilly: "I'm not a right-wing extremist, I believe in global warming!" auk hinnar óborganlegu 'shut up' syrpu hans. Henti upp smá sýnishorni af því atriði.