GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

mánudagur, nóvember 29, 2004

Blogsorp.com

Fyrir löngu kominn tími á nýja færslu hingað. Vegna bilunar hjá blogspot á laugardaginn þá varð ekkert úr lofaðri færslu þann daginn eins og ég hafði sagt frá á kommentasvæðinu. Varð alveg snælduvitlaus því ég hafði skrifað sæmilega langa færslu og hún glataðist vegna þess að ég var búinn að setja eitthvað annað í copy minnið þegar ég uppgötvaði villuna. Prófin eru að byrja hjá mér svo ég er kominn í crunch mode og mun ekki hafa tíma í að skrifa neitt hingað á meðan líklegast. Skal þó reyna það ef ég finn tíma.

Fórum út og ætluðum að fá okkur að borða nokkrir strákar á fimmtudaginn. Mikhael bankaði hjá mér og spurði hvort ég væri ekki til í mat og ég sagðist til í það, algjörlega grunlaus um hvað kvöldið ætti eftir að bera í skauti sér...
Nú við tókum þennan venjulega tilgangslausa göngutúr um nágrenni að finna einhvern stað sem okkur litist á hér í Gotenyama. Allt kom fyrir ekki að venju en ég ákvað svo að við myndum bara drífa okkur inn á næsta stað sem reyndist svo vera bar eftir allt saman. Við kunnum ekki við það að hypja okkur út um leið og við komumst að því, komnir úr skónum og allt. Pöntuðum okkur eitthvert hrísgjrónaáfengi og sötruðum það meðan gamla kellingin sem átti staðinn talaði við okkur. Hún talaði alveg sjúklega hratt og maður þurfti að hugsa sig um í tvær sekúndur alltaf til að átta sig á hvað hún hefði sagt. Svo bauð hún okkur upp á "service", en það er það sem Japanir kalla gjarnan það sem þú færð frítt með einhverju. Ekki leist okkur á kræsingarnar og get ég ekki ennþá áttað mig á úr hverju þetta var búið til. Við vildum samt ekki vera dónalegir og byrjuðum að troða þessu í okkur. Sögðum svo auðvitað að þetta væri mjög gott þegar hún spurði hvernig okkur fyndist. Þetta var afskaplega bragðvont og svo var mjög torkennilegt egg sem kórónaði þetta alltsaman. Ég fékk mér einn bita og kúgaðist nánast. Einhvern veginn unnið harðsoðið egg, gerjað eða einhver viðbjóður.

Þegar okkur sýndist kerla vera að útbúa meiri mat handa okkur þá reyndum að drekka dáldið hraðar en sluppum ekki við næsta rétt. Hún hafði búið til smá salat handa okkur með hráum laxsneiðum sem voru örugglega það eina góða við þetta salat. Hún hafði nefnilega hreinlega sturtað ólívuolíu yfir allt salatið. Lúkkaði svaka proffessional, en smakkaðist eins og hreinasti sori. Kláruðum þetta vitaskuld svo við værum ekki að fúlsa við þessari 'frábæru' service sem við fengum þarna. Skelltum í okkur restinni af drykknum (þetta var mjög stórt glas) og hypjuðum okkur út. Lofuðum samt að koma aftur. Ég held ég yrði að vera mjög fullur til þess!

Lagið að þessu sinni er Time to Know - Be Waltz eftir hina stórkostlegu Yoko Kanno sem er án vafa eitt besta tónskáld nútímans. Hún hefur stórkostlegt vald á öllum tegundum tónlistar, hvort sem það er sinfónía, raftónlist, jazz, bebop, eða hvað sem þér dettur í hug. Semur mikið af tónlist fyrir anime og er það yfirleitt trygging á good shit anime ef hún sér um soundtrackið. Ég gæti gush-að um hana yfir heilu blaðsíðurnar en ég læt þetta duga að sinni. Alls ekki hennar besta lag en mjög hressandi þó.