GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

The DS effect

Þar sem fólk var víst orðið eitthvað þreytt á að sjá bara gamlar partýblöðrur á blogginu þá ákvað ég að skella í smá færslu.

Snarkólnaði um daginn, tók upp svarta, þykkari, jakkann minn upp úr ferðatöskunni í fyrsta skiptið í tilefni þess. Síðan þá hefur hitastigið yfir daginn aftur farið upp í 20°C reyndar. Logn og sól oftast en einum of oft rigning finnst mér. Gerði nákvæmlega ekkert merkilegt yfir helgina svo ég muni eftir. Ætlaði að kíkja á hátíð sem hefur verið í skólanum síðustu 4 daga á laugardeginum en þá var rigning svo ég hékk bara heima. Kíkti þó á stemninguna eftir skóla í dag.

Tók mjög stutt viðtal við japanska stelpu í dag, smotterísverkefni fyrir Japönskuna því kennarinn varð að gefa okkur frí. Allt á japönsku að sjálfsögðu. Spurði hana meðal annars hvernig hún héldi að Íslenskur matur væri og hún nefndi hreindýr og seli. Virtist þó hafa heyrt á landið minnst áður því þegar ég spurði hana hvort hún gæti hugsað sér að fara til Íslands sagði hún já og að hana langaði mest til að prófa onsen-in á Íslandi. Mér fannst það cool, respect.

Um helgina kemur svo gestur til mín sem ætlar að dvelja yfir helgi. Enginn annar en sjálfur tortímandi Japanskra bragðlauka síðan febrúar 2004, Vilhelm. Villi er hefur verið skiptinemi í Okayama sem er á Chugoku svæðinu í Japan síðan í byrjun árs. Kannaðist lítillega við kauða áður en ég fór út vegna sameinlegra stöðva sem við sækjum á IRC. Hvað um það, á sunnudaginn er planið að kíkja til Osaka að sækja heim Touch! DS tour Osaka, þar sem Nintendo hefur leigt alveg gríðarstórt sýningarhúsnæði til að kynna nýju lófaleikjatölvuna sína sem ber nafnið Nintendo DS. Ég hef verið sveitt spenntur fyrir gripnum allt síðan hann var sýndur almennilega á E3 leikjasýningunni í maí á þessu ári. Einnig verða Nintendo með spilanlegar útgáfur af væntanlegum leikjum á GameCube og Game Boy Advance. Það er því nokkuð ljóst að þetta verður algjör þjóðhátíð fyrir mig því ég er svoddan Nintendo fanboy og leikjatölvunörri. Og djöfull ætla ég að reyna að skora einhverjar freebies eða Nintendo varning. Lofa myndum frá þessum atburði.

Á morgun er hinn mikli menningardagur, Cultural Day (Bunka no hi), sem er alþjóðlegur frídagur. Japanarnir eru algjörlega að standa sig í frídögunum.
Ghost in the Shell 2: Innocence er fucked-up mynd. Ef þér fannst sú fyrri ruglingsleg þarftu sálfræðihjálp eftir þessa. Sick flott samt sem áður.
Resident Evil 4 er ekki GameCube exclusive lengur..Ég er farinn að skæla undir sæng.

Uppfært: Mér ljáðist víst að setja inn nýtt lag vikunnar með þessari færslu. Reyndar veit ég ekki nafnið á laginu, en það er lag númer 12 af breiðskífunni Fresh Push Breakin' með Japanska raf-dúóinu Hifana. Ferskt stöff! Það er í styttri kantinum en ég lofa meiru frá þeim í framtíðinni fyrir þá sem ekki hafa heyrt.