GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Rate my bod mr. TV man

Gerði ekkert merkilegt um helgina, maður er allur að róast í djamminu. Próf og svona líka á næsta leyti.
Fór í baðhús á sunnudagskvöldinu og sá yakuza náunga þar. Hann var með dreka tattúveraðan yfir alla bakhlið líkama síns, frá öxlum niður í hæla. Þess má geta að fólk með tattú er meinaður aðgangangur að mörgum baðhúsum, fælir viðskiptavinina. Fyrir þá sem ekki vita eru fáir Japanir nema yakuza mafíóasar með tattú, en ef það er svona full-body type þá geturðu hengt þig upp á að það sé yakuza.

Keypti mér sjónvarp í síðustu viku og fékk það sent til mín á fimmtudaginn. Ekki ennþá náð að koma mér heim í tæka tíð til að hitta á húsvörðinn til að fá hann til að tengja það fyrir mig samt.

Var með 'skit performance' í Japönsku tíma í dag. Áttum basically að semja og flytja svona grín sketch á japönsku 5-10 mínútur að lengd og flytja fyrir bekkinn. Var sæmilega ánægður með það sem ég og tvö bekkjarsystkini mín fluttum en það voru mörg góð atriði þarna. Aðallega feginn að vera búinn að þessu.
Kominn með eitthvað leiðindakvef. Er lagstur í stífa CC Lemon drykkju (ofur C-vítamín drykkur) vegna þess auk þess sem lýsið sem Villi gaf mér mun koma að góðum notum.

Nýtt lag komið inn með uppáhalds japönsku söngkonunni minni, Sakamoto Maaya.