Touching is good
Loksins kemur hér færslan sem ég hafði lofað strax á mánudaginn en ekki varð úr vegna tæknilegra örðugleika. Þess má líka til gamans geta að það var enn einn frídagurinn í dag. Magnaðir þessir frídagar hérna.
Helgin var bissí. Villi kom á föstudeginum, gerðist ekki mikið það kvöldið.
Fórum í Den Den Town á laugardeginum en það er legendary raftækjahverfi í Osaka. Þræddum samt aðallega anime og manga búðirnar þar. Fórum meðal annars inn í stærstu all-Gundam búð sinnar tegundar í öllu Japan, tveggja hæða búð með allt frá Gundam búningum og nærbuxum upp í hjól og öll þau Gundam módel sem hægt er að kaupa. 18 metra hátt skilti trónaði líka yfir búðinni með Gundam róbot. Fyrir þá sem ekki vita er Gundam vinsælasta anime fyrr og síðar í Japan sem fjallar að miklu leyti um risa róbota og hafa komið út óteljandi mismunandi Gundam seríur.
Sunnudagurinn fór allur í Touch! DS sýningu Nintendo. Vöknuðum fyrir klukkan 8 um morguninn en þar sem við vorum alveg tæpa 2 tíma á leiðinni þangað þá var klukkan orðin 10 þegar við mættum og klukkutími búinn.
Því miður prófaði ég ekki nema einn DS leik, Balloon Trip (Yoshi's Touch & Go í USA) sem var algjörlega touchtastic. Ástæðan fyrir þessu var sú að það voru psycho 50-80 mín. raðir í svo gott sem alla leikina auk þess sem ég hef frekar lítinn áhuga á launch leikjum tölvunnar. Ég eyddi þó töluverðum tíma í að prófa nokkra væntanlega GameCube leiki. Donkey Kong Jungle Beat er vægast sagt frumlegur og feikna skemmtilegur leikur en það er platforming leikur (hopp&skopp) sem maður stjórnar persónunni með bongó trommum. Virkilega skemmtilegt og intuitive gameplay. Næst var Chibi Robo sem er mjög svo quirky leikur um róbot sem sér um heimilisverkin fyrir fjölskyldu. Það frumlegur og áhugaverður að hann mun eflaust aldrei líta dagsins út fyrir utan Japan því fólk kaupir ekki frumlega og góða leiki nema í Japan. Geist var svo síðastur en enginn hafði áhuga á honum þarna því Japanir þola ekki fyrstu persónu skotleiki (vinsælasta leikjategund vesturlanda).
Sýningin var öll með glæsilegasta móti, húsið var gífurlega stórt og var vægast sagt mikið af fólk mætt á viðburðinn.
DS skvísurnar voru algjörar mega-babes en þær löbbuðu um með DS tölvur fastar við sig til að leyfa fólki að prófa. Myndirnar sem ég tók ná þó ekki alveg að grípa fegurð þeirra finnst mér. Reyndar voru skilti sem sögðu að ekki mætti ljósmynda og var það frekar hvimleitt þó ég hefði nú bara samt tekið myndir og starfsfólk var lítið að skipta sér af því. Nema reyndar gaurinn sem sést veifa höndunum á þessari mynd. Þetta var nú bara fyrir utan húsið (og reyndar ekkert tengt DS sýningunni) en ég veit ekki hvaða rétt þessi maður þóttist hafa á því að banna manni að ljósmynda utandyra. Kristófer var sá eini af okkur sem náði augnsambandi við DS gellu upp á að fá að fá smá DS lovin', en hún var fljót að líta í aðra átt enda bara náttúruleg viðbrögð þegar Kristófer er annars vegar. Annars virkaði þetta basically þannig að þær völdu fólk til að prófa tölvuna hjá sér...ekki öfugt. Því miður var svo gott sem ekkert um freebies eða Nintendo merchandise, fékk þó Nintendo DS taupoka, official guide book og Chibi Robo mini-manga.
Vorum nánast alveg til lokun, yfirgáfum staðinn tæplega fjögur og Villi tók svo rútuna heim um sex leytið og ég dreif mig heim alveg dauðþreyttur eftir að hafa staðið í röðum í 6 tíma og ferðast í lest í allavega 3 klst. samtals auk þess sem hnén á mér höfðu breyst í vökvaform eftir sýninguna. Tékkið svo á myndunum. Ekkert fancy í kringum þær, bara mappa á háskólaplássinu og því miður eru þær flestar frekar dimmar vegna skorts á nægilegu ljósi fyrir vélina. Hugsaði heldur ekki út í að ná myndum af sjálfum mér á sýningunni.

<< Home