GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

fimmtudagur, nóvember 04, 2004

Watanabe katto

Fór í klippingu áðan á leiðinni heim á klippistofu nálægt húsinu mínu. Það gekk betur en ég átti von á, gat gert mig svona frekar skiljanlegan við klipparann. Frekar ómerkileg klipping samt en mjög gott að losna við þennan lubba sem ég var kominn með.
Klipparinn eyddi svo óratíma í að snyrta hárið eftir að ég hélt að hann væri búinn en það er ekki beint að sjá samt. Svo skellti hann raksápu á mig og rakaði með hníf hárröndina frá eyra til eyra yfir hnakkann.
Alvöru hnakkarakstur!