Bumbur og bassi
Þann 9. des var ég að labba út úr skólabyggingunni minni eftir að hafa skilað inn síðasta prófinu. Fyrir utan kom upp að mér japönsk stelpa sem spurði mig nokkurn veginn upp úr þurru hvort ég hefði gaman af tónlist. Mér fannst svarið við þeirri spurningu nokkuð augljóst og svaraði "Yeah, sure". Hún hélt áfram og spurði hvernig tónlist mér líkaði við, ég sagði það vera aðallega rafónlist af ýmsum toga. "Drum&bass?" spurði hún sem opnaði augun á mér alveg upp á gátt. Hún sagði mér að það yrði eitthvað mega drum&bass djamm í Osaka þann 18. des og spurði hvort ég hefði áhuga á að fara. Ég sagði það kæmi vel til greina og spurði hana frekar út í þetta, vinur hennar er víst með DJ sett þarna og hún hafði talað við nokkra útlenska nemendur til að kíkja með sér og vinum sínum á þetta.
Ég ætla að slá til og er því á leiðinni að hitta hana og vini hennar á Namba stöðinni í kringum átta leytið. Drullusnemmt finnst mér en ég á ekki annarra kosta völ því ég hún á ódýrari miða inn fyrir mig og hún er að fara á einhvern stað á undan til að drekka og svona. Svo rata ég nákvæmlega ekkert í Namba. Samt mjög elskulegt af henni að nenna að pikka mig upp svona og leyfa mér að hanga með vinum sínum. Ætti að vera forvitnilegt allavega. Á von á sveittu stuði á dansgólfinu.
Eins og alltaf þegar maður fer á djammið lengra en allranánasta umhverfi þá á ég ekki von á því að vera kominn heim fyrren í fyrsta lagi klukkan 07 á morgun, ráfandi um af þreytu eins og zombie.
Góð afsökun til að skella inn drum&bass lagi líka, þó ekki sé mikið úrval af þeim reyndar á tölvunni sem ég er á. Gamall en hressandi rúllandi fönkari með EZ Rollers.

<< Home