GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

sunnudagur, desember 12, 2004

Dóri fór til Kína í gær og var svo góður að lána mér tölvuna sína á meðan svo ég er orðinn tölvuvæddur aftur tímabundið.

Prófin eru búin og komin gróf mynd á vetrarfríið hjá mér sem er tæpir 2 mánuðir að lengd. Þann 22. desember tek ég rútu til Niimi til að heimsækja Villa og fjölskylduna sem hann býr hjá. Mun eyða jólunum mínum þar og tek rútuna heim þann 26. desember.
Mun svo kíkja í heimsókn til hans Árna í Tokyo yfir áramótin, ekki alveg búinn að ákveða það en fer til hans í fyrsta lagi 28. des og verð hjá honum í ca. viku. Strákarnir eru annars búnir að plana viku bíltúr vikuna áður en skólinn byrjar aftur. Stefni svo á að kíkja til Hokkaido í millitíðinni, sem er nyrðsta eyja Japan.

Fór í bíó í fyrsta skiptið síðan ég kom hingað á föstudaginn. Sá The Incredibles í Kyoto með Mikhael. Var bara nokkuð ánægður með hana, sæmilega fyndin á köflum og action-ið var frekar kúl bara. Fínasta bíóhús líka. Gisti svo heima hjá Mikhael og fékk að smakka nýja fútoninn sem hann hafði keypt í tilefni komu pabba síns sem kom í gær. Svaf vært þá nótt.