Drum&bass will never die!
Laugardagur klukkan 20:34. Yuuka kemur og pikkar mig upp á Namba stöðinni og við löbbum á nálægan izakaya veitingastað. Þar fyrir sitja 2 bandaríkjamenn sem ég kannast við í sjón úr skólanum, ástrali sem var með Yuuku í skóla í high-school og ein japönsk stelpa. Allir gaurarnir voru sick góðir í japönsku, level 4 og 5 samvkæmt áfangakerfi skólans. Skildi ekki nema brot af samræðunum sem áttu sér stað þarna og gat ekki tekið þátt í þeim af augljósum ástæðum. Sem betur fer bjargaði gamla góða Ísland mér með umræðuefni, alltaf nóg af spurningum um það frá fólki sem maður hittir. Ástralski gaurinn sagðist vera sérstaklega impressed yfir enskukunnáttu minni, gaman af því. Vildi að einhver hefði getað sagt það um japönskuna mína frekar.
Eftir nokkra bjóra bættust við í hópinn tvær aðrar vinkonur hennar Yuuku sem voru í hressari kantinum. Klukkan rúmlega 11 var svo tími að hafa sig af stað á klúbbinn. Ástralinn og önnur vinkonan fóru ekki með og kvöddu. Góð stemning á klúbbnum og fínasta lagaval hjá plötusnúðunum. Dansaði eins og óður maður þangað til ég varð örmagna og chillaði í einum sófa staðarins. Þegar ég hafði safnað upp kröftum til leggja aftur í dansgólfið var leikurinn endurtekinn.
02:30; búinn að nota upp alla orkuna mína og orðinn bara frekar slappur. Áfengismagnið ekkert að sliga mig þó. Hangi í sófa með bandaríkjamönnunum Sam og Dillon í pínulitlu bakherbergi staðarins og reyni að hvíla mig enda ennþá 3 tímar í fyrstu lest heim. Eftir hálftíma til klukkutíma af því gefst ég upp og ætla mér að taka leigubíl heim þó dýrt gæti orðið. Þegar ég er að kveðja Yuuku og vinkonuna þá segja þær bara "dame!" á leigubílinn, það kunni vel að kosta mig 10.000 yen! Ég var ekki til í að eyða svo háum fjárhæðum til að komast heim svo ég fer aftur í bakherbergið og legg mig í einn af tvísæta sófunum þar og læt ljúfa drum&bass tóna vagga mér í svefn. Álíka svæfandi og að vera barinn með sleggju í hausinn reyndar, sérstaklega þar sem tennurnar í mér glömruðu vegna bassaþungans!
Milli 4 og 5 var reynar geðveikt old-school hardcore session í gangi, mjög flott syrpa og leiðinlegt að vera svo þreyttur að geta ekki dansað baun. Tæplega 06 um morguninn kemst ég svo loksins í lest heim. Kanarnir eru að tala sín á milli á frekar langdrægan hátt enda mjög þreyttir líka. "Hey maaaaaan..." Heyrist einstaka 'chuckle' frá mér yfir þessum ótrúlega mygluðu 'maaaaaaan' samtölum.
Rúmlega 7 er ég kominn heim fæ mér aðeins í svanginn áður en ég leggst loksins í rúmið klukkan 8. Algjörlega dauður. Virkilega þreytandi kvöld en skemmtilegt samt. Vinkona Yuuku bauð okkur svo öllum í takoyaki partý heima hjá sér einhvern tíman bráðlega.

<< Home