GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

fimmtudagur, desember 16, 2004

Úgglendingur

Ég sendi tölvuna til Acer í gær. Þeir fengu hana til sín í dag og það tekur víst 3 daga fyrir þá að skoða hana. Svo það er eitthvað að rofa til í þessum málum.

Fyndið hvað litlum krökkum finnst skrítið að sjá útlendinga. Þeir yngstu stara á mann með blöndu af forvitni og hræðslu. Þeir eldri, þá sérstaklega 12-13 ára stelpur, reyna að segja eitthvað á ensku við mann algjörlega upp úr þurru. Yfirleitt bara eitthvað eins og "Hello!" eða "Bye bye!" eða "How are you?". Ég segi yfirleitt eitthvað á móti á ensku en ef maður svarar á japönsku fríka þær yfirleitt alveg út. Svona eins og ef þær myndu mæta geimveru sem talaði sama mál og þær.

Er að bæta upp fyrir lagaleysið upp á síðkastið með því að bæta við öðru Trabant lagi. Gæti meira að segja verið að ég seti eitt til tvö til viðbótar með næstu færslum. Lofa þó engu.