GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

föstudagur, desember 31, 2004

Hraðari en skugginn

"Ladies and gentlemen. Welcome to the Shinkansen. This is the Nozoma superexpress bound for Tokyo."
Já hér er ég staddur í annað sinn í hinum ótrúlega áreiðanlegu og stórkostlegu shinkansen hraðlestum. Eins og aðrar lestir í Japan eru þær alltaf á réttum tima. Shinkansen eru reyndar ekki lengur hröðustu lestir i heimi, en ferðast þó á 250-300 km. hraða. Sem þykir gott í mínum bókum. Sjúklega dýrt samt, borgaði lítil 13.000 yen fyrir miðann aðra leiðina. Er rúmlega tvo tíma á leiðinni að ég held.

Áramótin skella svo á í Tokyo eftir 8 klukkustundir, heilum 9 tímum á undan gamla Íslandinu. Svo þegar þið sem þar eruð fagnið miðnæturslaginu þá verð ég annaðhvort á lokadjammsprettinum eða fyrir löngu dauður bara í ræsinu bakvið einhverja strípibúllu.