Jólin
Það má segja að jólin hafi verið afskaplega dapurleg hjá okkur félögunum í Niimi. Ég að minnsta kosti saknaði sárt fjölskyldu og vina sem og jólaandanum og góða matnum sem allt var var okkuð víðsfjarri. Eins fjarri og hugsast getur orðið held ég. Finnst eiginlega bara eins og það hafi ekki verið nein jól þetta árið.
Það má lýsa Niimi í einu orði kalt. Ísjökulkdauðakuldi, bæði utan sem innan. Villi hafði mælt með að ég tæki hlý föt sem ég gerði upp að frekar litlu marki, því satt að segja hvarflaði ekki að mér það væri svona kalt þarna. Ég meina, maður getur komist upp með að vera í sumarjakka í Osaka ennþá, á daginn að minnsta kosti. Var sem betur fer ekki kalt á nóttunni samt, svaf undir tveimur teppum og þykkustu sæng sem ég hef séð á ævinni auk þess sem ég var með hitateppi undir dýnunni.
Ég hafði ekki hugmynd um hvað fólkið á heimilinu hét því enginn var á því að kynna sig þó ég hafi kynnt mig eftir kúnstnarinnar reglum. Villi var heldur ekkert að kynna fjölskyldumeðlimi fyrir mig. Kom ekki mikið að sök svosem, en virkaði einkennilega á mig. Annars var fjölskyldan hans Villa í alla staði mjög elskuleg við mig. Mjög vinalegt fólk, fékk meira að segja jólagjöf frá þeim. Peysu sem ég er ekki ennþá búinn að gera upp við mig hvort ég sé tilbúinn að ganga í. Fínasta Engrish á henni samt. Mamman og pabbinn spurðu mig einstaka spurninga, pabbinn þó meira. En þar sem japanskan mín er ennþá mjög takmörkuð varð ég að treysta nokkuð á Villa til að þýða fyrir mig og hjálpa mér með tilsvör.
Á Þorláksmessu fórum við í hressilegan labbitúr um Niimi. Þetta er alveg rosalega sveitó staður, en áhugavert að skoða. Á aðfangadag fórum við til Kurashimi og eyddum meirihluta dagsins þar. Ekki mikið þar að sjá nema verslunarmiðstöðvar reyndar. Villi lokkaði mig þangað meðal annars með fyrirheit um alvöru Bukkake Udon, en það er veitingastaða keðja þar með því nafn, en þegar til kastanna kom hafði hann því miður ekki lyst á því. Í matinn á aðfangadag fengum við svo sukiyaki, mjög góður pottréttur með kjöti, grænmeti og udon hveitinúðlum sem öllu er dýft ofan í hrært hrátt egg sem allir hafa í skálinni sinni.
Er búinn að vera í mikilli leti síðan ég kom heim en þetta ferðalag dró dáldið úr mér. Ætlaði upphaflega til Tokyo í dag en ákvað að fresta för minni þangað til á morgun. Vona að það verði gott stuð þar á gamlárskvöldi. Henti svo að lokum inn síðasta lagi ársins, lagið Super Shooter með japönsku sveitinni Rip Slyme.
Að lokum vil ég þakka fyrir jólagjöfina frá fjölskyldunni í Þingholtsstræti og Óskari fyrir jólakortið. Átti ég svo sannarlega ekki von á því!
Vona að þið hafið það gott yfir áramótin!

<< Home