Öppdeit
Mamma hafði samband við tryggingafyrirtækið og þeir segjast bæta mér þetta. Ég var satt að segja frekar hissa því yfirleitt beita þeir öllum brögðum til að komast hjá því að borga. Svo mér líður ekki eins algjörum skít lengur. Þó þetta sé dauður hlutur sem hægt væri að endurnýja og allt það er samt erfitt að kyngja því að 150.000 kall væri farinn í vaskinn. Auk þess sem það gerir mig alveg geðveikan að vera tölvulaus.
Ég veit að mörgum fannst þetta gott tækifæri til að skjóta á að fara vel með hluti stefnuna mína, en ég lít svo á að hún hafi ekki beðið neina hnekki. Þetta var algjört slys og ef eitthvað er finnst mér langöruggast að drekka úr flösku ef ég ar að drekka við tölvuna á annað borð. Það verður þó tekin upp 'engin drykkjarföng við tölvuna' stefna eftir þetta sem ég vona að mér takist að halda mér við. Verð þó algjörlega tölvulaus yfir áramótin sýnist mér á öllu þannig að það er eins gott að fjárfesta í nokkrum leikjum fyrir Game Boy auk þess að taka upp þessar bækur sem ég hef fengið lánað og keypt mér. Þó mér finnist samt rooosalega erfitt að komast ekki á netið, horfa á DVD/video af netinu og hlusta á tónlist. Vona bara að geðheilsa mín þoli þetta, en vissulega er þetta jákvætt fyrir próflærdóminn.
Tryggingarfyrirtækið vill að ég fari með tölvuna á viðgerðarverkstæði til að meta hvort hægt sé að gera við hana eða ekki og að verkstæðið sendi þeim mail um stöðuna. Nokkuð viss um að hún verði ekki löguð en eins og Kristófer komst að orði þá verður það mission: impossible að fá eitthvað viðgerðarversktæði hérna til að senda mail á ensku hugsa ég.

<< Home