GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, desember 15, 2004

We're on an express elevator to hell - going down!

Kíkti í heimsókn til hans Kristófers á heimavistina og horfði á Aliens með krökkunum þar. Ég var að verða geðveikur á leiðinlegum og tilgangslausum athugasemdum frá Bandaríkjamönnunum og ömurlegum tilraunum hjá fólki til að vera fyndið. Þessi gullna klassík á betra skilið og á að vera yfir svona hafið. "He's a very baaaad man, höhöhöhööh", "why do all the movie monsters make the same sound??", "it's always the kid that saves the day". Og svo var fólk líka spyrjandi "Ööööhöööö so it's like a self-destruct kind of thing again?", ég svaraði: "If you had payed any attention you wouldn't need to ask". Yeah, that showed him.
Hafði samt frekar gaman af eina japanska gaurnum þarna. Hann sagði í sífellu "kowai" (scary) þegar eitthvað scary dót var í gangi og "ussou" (lygari) þegar hann var spenntur. Hann hljómaði líka algjörlega einlægur þegar hann sagði þetta sem ég fílaði.
Fann samt algjörlega þannig vibe að fólkið sem sat þarna leit á myndina sem enn eina frekar ómerkilega skrímslamynd bara. Fólk er algjörlega búið að flokka svona myndir niður og sér ekki framhjá fyrirfram ákveðnu hugmyndunum sínum. Sannar fyrir mér í eitt skipti fyrir öll hvers vegna sci-fi myndir ná sjaldan sömu aðsókn og "venjulegar" myndir í kvikmyndahúsum. En þetta er örlítið að breytast á síðustu árum sem betur fer. En mér fannst algjörlega verið að kasta perlum fyrir svín þarna, Aliens er ein af örfáum myndum kvikmyndasögunnar sem eru framhöld af meistaraverki og þykja jafngóðar eða betri en fyrirrennari sinn. Já ég er sko pirraður eftir þetta, Aliens er ein af all-time uppáhalds myndunum mínum.
Og hananú!

Kíkti í bæjarleiðangur með Mikhael og pabba hans í gær til Umeda í Osaka. Fínasti túr, fékk frítt að borða og svona. Pabbi hans Mikhael er mjög hress og afslappaður kall, kunni mjög vel við hann. Reyndi að finna einhverjar jólagjafir en það gekk ekki neitt hjá mér þann daginn. Keypti mér nýja earbuds fyrir Game Boy Advance tölvuna mína því mér tókst að brjóta hina fyrir löngu síðan.

Fékk svo formlegt "Extension of stay approved" í dag en allir sem ætluðu að vera allan veturinn þurftu að sækja sérstaklega um að fá að vera áfram næstu önn. Ekki búinn að fá einkunnir úr japönskuáföngunum en þetta staðfestir allavega að ég hafi náð öllu.

Lagið að þessu sinni er Moment of Truth með íslensku hljómsveitinni Trabant. Án nokkurs vafa besta íslenska hljómsveitin að mínu mati og því miður of margir íslendingar sem hafa ekki hugmynd um hana þó svo að þessi fyrsti diskur þeirra (sem heitir einmitt Moment of Truth) sé búinn að vera til lengi.