Ninja Tune rokkar eldhúsið
Ég og Dóri skelltum okkur á Ninja Tune kvöld í Osaka á laugardaginn með legends á borð við DJ Food og The Herbaliser að spila. Vinur Dóra frá Tokyo, spánverjinn Jorge (borið fram Horghe) fór með og var þetta nokkuð skemmtilegt kvöld.
Byrjuðum á því eftir nokkra bjóra að fara á veitingastaðinn Otoko wa tsurai sem hefur komið áður við sögu hér. Jorge var svo mikill smooth-talker og sleipur í japönskunni að fyrren varði voru komnar þrjár stúlkur af nálægu borði yfir á okkar. Ágætis félagsskapur það en þær voru ekki alveg til í að borga 5000 yen til að fara á þetta klúbbakvöld með okkur svo við kvöddum þær og skelltum okkur í sardínudósina.
Það voru svo margir þarna inni og svo sveitt að peysan sem ég var í varð gjörsamlega gegnsósa af svita. Eins og ég væri nýstiginn úr djúpu lauginni. Fólk var líka dansandi á sófunum vegna þrengsla. Músíkin var töff alveg þar til DJ Food sjálfur mætti á svæðið klukkan 4 um nóttina eða eitthvað og byrjaði að kokka upp tónana. Eina sem hann spilaði voru einhverjar gamlar soul og funk plötur sem átti að vera mega hip greinilega sem það og var í frekar takmarkaðan tíma. Svo fékk maður leið á þessu gamla drasli og vildi að hann matreiddi eitthvað ferskara stöff ofan í okkur en Foodarinn var ekkert á þeim buxunum. Svo var hann nákvæmlega ekkert að gera DJ wize. Bara crossfade-a yfir á næsta lag án þess að pæla neitt í því hvað hann væri að gera. Gífurleg vonbrigði enda er DJ Food einn af þessum gömlu meisturum fyrir mér. Drifum okkur út bara frekar fljótlega eftir að hann byrjaði að spila og gripum lest heim milli 5 og 6 um morguninn að mig minnir.
Dóri fylgdi Jorghe í shinkansen heim til Tokyo og ég fór á undan heim í Gotenyama. Steinsofnaði í lestinni á leiðinni og rankaði við mér kominn hálfa leið til Kyoto og rotaðist ekki fyrren rétt fyrir klukkan 9 á koddann eftir smá matarstopp og DVD gláp með.
Er ekki ennþá búinn að fá tölvuna mína því miður svo fólk viti af því.


<< Home