GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Sjónvörpun 7.....Engage!

Eins og sumir kunna að muna eftir þá talaði ég um að fara í eitthvað blússandi svall roadtrip með hinum íslensku töppunum en við erum einróma búnir að hætta við hana. Komnir með alveg nóg af ferðalögum auk þess sem við erum allir alveg skítblankir. Lánið fyrir þessa önn ekki ennþá komið inn og allir að lepja dauðann úr skel.

Mér finnst Japanska sjónvarpið alltaf verða betra og betra. Ég veit ekki hvort það sé vegna þess að ég skil meira og meira eða eitthvað annað. Nokkur atriði sem við skulum samt fá á hreint með Japansk sjónvarp. Það er sama fólkið í öllum þáttunum. Einn þáttastjórnandi er t.d. oft með þátt á mörgum stöðvum auk þess að koma fram sem gestur í öðrum þáttum. Hálfgert runk, en það er ágætt þegar maður skilur ekki nógu mikið að allavega kannast við fólkið í þáttunum úr öðrum þátt. Meikar þetta einhvern sens? Svo má ekki gleyma sykurpúðunum í boy-bandinu SMAP sem hreinlega eiga sjónvarpið hvað varðar on-air-time. Það er varla nokkurn tíman ekki þáttur á að minnsta kosti einni stöð með einhverjum meðlimi SMAP að stjórna þættinum eða í hópi þáttakenda.
Það má segja að það sé hálf aðdáunarvert hvað þeir eru öflugir í innlendu sjónvarpsefni. Um 95% í sjónvarpinu er 100% Japanskt. Þar af eru á að giska 55% gameshows/viðtalsþættir, 20% sápur, 10% fréttir, 10% anime og 5% bíómyndir.

Nokkrir uppáhaldsþættir:



Matthew's Best Hit TV: Þið sem hafið séð Lost in Translation ættuð að kannast við þennan. Stórskrítinn í alla staði og er stjórnað af fyndnasta og skemmtilegasta sjónvarpsmanni Japan að mínu mati. Ljóshærð hárkolla, ljósar augnabrýr, ljós augnhár og röndótt jakkaföt er gerfið hans í þessum þætti sem snýst ekki um neitt.

Planet of the Apes spurninga/orðaleiksþáttur: Ok, ég veit reyndar ekki hvað þessi þáttur heitir, en spyrlarnir tveir eru báðir meikaðir upp eins og apar og klæddir upp í samskonar föt og voru í upprunalegu Planet of the Apes. Matthew's Best Hit gaurinn er annar spyrillinn sem meðal annars gerir þennan þátt að instant hit hjá mér. Leikmyndin er svo öll brún og í steinum.

Eigo de shaberanaito: Án vafa besti enskukennsluþátturinn af mörgum í sjónvarpinu sem sjónvarpað er á ríkissjónvarpinu, NHK. Bandaríkjamaður sér um þáttinn en í hann koma meðal annars erlendar kvikmyndastjörnur og tónlistarmenn sem eru svo tekin í viðtal af japönskum leikara/tónlistarmanni. Tom Hanks var í þættinum um daginn og lá Japananum sem tók viðtalið mikið niðri fyrir að koma Hanks í skilning um það að hann væri leikari líka og mjög þekktur í Japan meira að segja.

Tadano Hitoshi: Tadano-san, dularfullur skrifstofustarfsmaður á daginn, geðsjúkur gúmmítöffari með sígarettu greipta í kinnina á kvöldin. Leynilögreglumaður / spæjari af hörðustu tegund. Ómögulegt segið þið? Nei, þetta er 'all in a days work' eins og alvöru töffarar segja. Það er heldur ekki á allra færi að fá svo explosive standpínu að handklæðið skýst af honum í saununni. Slatti af nöktum kvensum, ofurtöffaraskapur og ýktar uppákomur fá mig til að halda að þetta sé byggt á gömlum anime þætti.
Og nei ég er ekki að búa þetta til, pottþétt þáttur sem ég mun leita uppi textaðan á netinu um leið og ég fæ nýju tölvuna.

Var að fylgjast með fréttum um daginn þegar Bush var að svarinn til embættis. Þar var tekið fram að Bush hefði ekkert minnst á efnhagsmál í ræðu sinni en hélt þess í stað mjög óljósa ræðu um frelsi og lýðveldi. Mér þótti vænt um það að NHK fréttastofan hafi talið fyrir áhorfendur og tekið sérstaklega fram hversu oft Bush sagði orðið frelsi í ræðu sinni, eða nákvæmlega 45 sinnum. Höfðu líka klippt saman smá reel af Bush bara að segja freedom: "..have freedom...", "....freedom is..", "..and freedom...",

Fór ekki að sofa í nótt svo ég er orðinn þokkalega tæpur á því akkúrat núna. Er að reyna að rétta af þennan djöfulsins sólarhring áður en skólinn byrjar og það þarf desperate measures eins og þessar til!