THE TOKYO SAGAS, part II
Svo fólk viti hvað er í gangi hjá mér þessa dagana þá fórum ég og Mikhael á "djamm" ef svo má kalla með 12 japönum síðasta föstudag. Svo hef ég verið í heimsókn hjá Mikhael frá því á laugardagskvöldinu, kom heim seint í gærkvöldi. Mikhael var svo góður að sýna mér meira af Kyoto og fara með mig á bæði frábær veitingahús og baðhús.
Ég hef svo fest kaup á nýrri tölvu sem ég ætti að fá í hendurnar snemma í næstu viku.
En hér kemur svo áframhald af ferð minni til Tokyo.
Vaknaði sæmilega hress frekar seint á nýársdag og var planið að hitta Miyuki vinkonu hans Árna en hún var búin að lofa að fara með okkur í eitt stærsta hof Tokyo til að biðja fyrir nýju ári og skoða mannfjöldann. Það var skítakuldi út svo maður fór sæmilega vel klæddur. Það var þvílík þvaga á staðnum og tók okkur örugglega hálftíma til klukkutíma að komast að aðalbyggingunni til að henda pening. Eftir það keyptum við lukkugripi, ég keypti mér grænan sem Miyuki sagði mér að verndaði gegn umferðarslysum svo ég ætti að vera sæmilega tryggður fyrir þeim næsta árið að minnsta kosti.
Við vorum öll orðin frekar svöng eftir þetta og fórum á stað sem hét Italian Viking, nema hann var bara lokaður. Við urðum því að sætta okkur við Pasta Viking sem var svona all-you-can-eat/drink ítalskur staður með pumpandi hip-hop tónlist. Fékk vænan skammt af "motherfucker!" og fleiri góðum frösum með matnum og tónlistin frekar hátt stillt. Sjúkar pizzur þarna.
Það var mjög skemmtilegt að æfa japönskuna með Miyuki því það var mjög auðvelt að skilja hana og tala við. Að vísu hjálpaði að ef eitthvað vandamál kom var hún góð í enskunni. Hún hefur samt eflaust einfaldað mál sitt svo að við Íslendingarnir ættum betra með að skilja hana, en ég var samt rosalega ánægður með minn skilning á japönskunni hennar. Miyuki dróg okkur svo í purikura eftir matinn (þessar óðu passamyndir) sem kom stórskemmtilega út reyndar og okkur Árna tókst að sannfæra hana um að það væri betra að bæta ekki neinum hjörtum, sápukúlum eða texta inn á myndirnar. Reyni að koma þessu á netið þegar ég fæ nýju tölvuna mína.
Ekki missa af lokahluta Tokyo sögunnar sem kemur inn í síðasta lagi snemma í næstu viku.

<< Home