GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, janúar 12, 2005

TOKYO ÆVINTÝR, fyrsti hluti

Hér kemur það sem þið hafið öll beðið eftir, hin ógleymanlega ferðasaga frá Tokyo! Og lýðurinn tryllist!!

Mætti í kringum kvöldmatarleytið í Tokyo á gamlársdag og tók lest til Komagome þar sem Árni tók á móti mér opnum örmum. Eftir að ég hafði komið mér fyrir í skítakuldanum heima hjá honum fórum við í gamlársmatinn. Ætluðum á einhvern Ítalskan í nágrenninu en hann var lokaður svo við fórum á einhvern fjölskyldustað sem var aðeins lengra frá. Fengum þessa ágætu pulsu og eggjapizzu og meðlæti þar og stóran bjór. Okkur leið samt algjörlega eins og í einhverri David Lynch mynd því staðurinn var í svona amerískum diner stíl og tónlistin þarna var svona easy-listening blásturshljóðfæristónlist sem hefði sæmt sér vel í súru atriði í hvaða Lynch mynd sem er.

Fljótlega eftir næringuna fórum við og hittum Kristófer og fórum svo upp í hof sem er nálægt Waseda skólanum hans Árna til að taka áramótin á Japanska mátann. Á leiðinni náðum við líka í Zack vin hans Árna og kærustuna hans sem er japönsk. Á miðnætti barði svo einvher gaur risastóra trommu villt og allir fögnuðu nýju ári með því að kasta 100 yen peningum inn í hofið og biðja svo fyrir góðu nýju ári. Vorkenndi samt fólkinu sem stóð fremst sem eflaust fékk ófáann skildinginn í hausinn. Fljótlega eftir það óskaði ég öllum viðstöddum sem ég þekkti gleðilegt nýtt ár og fékk ég hlýju og faðmlag frá öllum nema Zack sem horfði á mig eins og ég væri geðsjúkur morðingi þegar ég tók í hendina á honum. Honum fannst ég greinilega ekki þekkja hann nógu vel til að óska honum gleðilegs nýs árs og hefði eflaust verið ánægðari ef ég hefði bara skilið hann útundan í fögnuðinum.

Nú við höfðum drukkið aðeins áður en við komum í hofið en drifum okkur þvínæst á izakaya stað þar sem við drukkum þangað til mannskapurinn var orðinn aðeins hressari. Staðurinn var frekar pakkaður af japönum og voru þeir mjög duglegir að æla út bæði klósett og pissuskálar staðarins. Svo í einni biðröðinni inn á klósettið datt gaur á aldri við mig í hug að sýna hvað hann væri rosalega sleipur í enskunni og líka hvað hann væri ógeðslega fullur. "So why don't you drink?!?!!" öskraði hann í sífellu á okkur, á meðan vinir hans (sérstaklega kvenkyns vinir hans) afsökuðu sig í bak og fyrir við mig og aðra þarna í kring og reyndu að þagga niður í honum.

Eftir þetta fóru Zack og kærasta heim á leið (því hún vildi ekki leyfa honum að djamma, tjelling!) og við stukkum inn á klúbb sem Árni leiddi okkur inn á eins og Móses leiddi hjörðina. Þar var í gangi þetta fínasta jump-up drum&bass (d&b í hressari kantinum) og við vorum fljótir að sturta niður þessum tveimur fríu drykkjum sem fylgdu aðgangseyrinum. Á meðan á því stóð tók ég upp á því að hrasa á borð og kolla og svo á gólfið og meiða mig á hné auk þess að gera gat á buxurnar mínar. Mjög ekki-cool. Málið var ekki að ég væri orðinn svona drukkinn, heldur stóð ég bara alveg upp við upphækkun á gólfinu án þess að gera mér grein fyrir því sem ég hrasaði um þegar ég tók næsta skref. Náði smá augnsambandi við gaur eftir að ég var staðinn upp sem brosti til mín og hristi svo á sér hausinn. Var samt svo undercover brother á því að það helltist nánast ekkert úr næstum fullu glasinu sem ég hélt á. Coolio.

Eftir að hafa dansað í dágóða stund var skipt um tónlistarstefnu við mikinn ófögnuð hjá okkur félugunum og við drifum okkur bara út. Röltum aðeins niður í bæ áður en leiðir skildu og ég og Árni fórum heim til hans með smá matarstoppi í Family Mart. Var svo kominn undir sæng klukkan rúmlega átta um morguninn í öllum fötunum mínum enda kaldara en í frystikistu heima hjá Árna.

Vísa í smá myndasafn hjá honum Árna af djamminu.
Fylgist með æsispennandi framhaldinu.