GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, febrúar 23, 2005

Check checkity-check!

Hitti spjall félagann minn Ayumi á fimmtudaginn ásamt vinkonu hennar. Þetta verður bara verra og verra. Vinkona hennar er eflaust sú ófríðasta sem ég hef séð síðan ég kom hingað til Japan og þær höfðu nákvæmlega ekkert að segja heldur. Voðalega leiðinlegt hvað þetta fólk sem býður sig fram í speaking partner program hefur ekkert að segja frá og enga staði sem það langar með mann á. Hún sendi mér mail svo núna rétt áðan og var að spyrja hvenær við gætum hist aftur. Mig langar bara hreint ekkert að svara! Skipta um númer og raka af mér allt hárið og augnbrúnirnar svo ég þekkist ekki.

Helgin var letileg eins og svo oft áður. Maður er svo þreyttur eftir þennan skóla að maður nennir varla að gera neitt um helgar. Sérstaklega er maður latur á djammið af ástæðum sem ég hef nefnt hér áður. En það stendur til að pína sig þessa helgi þó. Ég afréð að bjóða Yuuku á drum&bass kvöld þar sem meistari J-Majik mun þeyta skífum þar sem hún á engan pening sjálf og langaði að fara, svo ég er að splæsa. Þetta verður rómantísk kvöldstund með þumpandi drum&bass í bakgrunninum.

Matreiðsluþáttur sem ég hef horft á glefsur af í sjónvarpinu síðustu vikur er 'The GOLDEN SPOON Tournament'. Þar keppast meistarakokkar við að matreiða hina ýmsu veislurétti ofan í eina matskeið fyrir dómarana. Við erum að tala um að eldamennskan fari fram í skeiðinni sjálfri, skeiðinn er sett undir loga eða blágum loga beint að henni og allt skreytt í miklum smáatriðum. Skemmtilegt spin á matreiðslukeppnir.

Er að taka út smá Star Trek æði akkúrat núna. Eða kannski er ég bara að svala Star Trek þorsta frekar. Tók eftir því að rándýru The Next Generation season boxsettin eru orðin ódýr svo ég skellti mér á eitt slíkt. Algjört konfekt fyrir svona trekkara eins og mig. Dóri er líka algjör trekkari svo hann hefur verið að ganga í settið.
One to beam up.