Ný önn hafin
Skólinn byrjaði á mánudeginum í síðustu viku og ég er strax búinn að fara í 2 próf. Er með nýja kennara í japönsku sem er gott finnst mér. Fyrsta skipti sem karlmaður kennir mér japönsku, Saigo-sensei, og hann er þokkalega sýrður náungi. Var víst alinn upp í einhverjum geðsjúkum yakuza skóla og allir fyrrverandi bekkjarbræður hans eru yakuza gaurar, eða svo segir hann. Fer að sjá hann fyrir mér sem einskonar grown-up útgáfa af GTO (Great Teacher Onizuka), sem er stórgott manga og anime.
Hitti nýja speaking partnerinn minn síðasta miðvikudag og var svo mikið að vonast til að það væri einhver kjútí. Mér brá heldur betur þegar ég hitti hana svo, hún er að minnsta kosti 100 kg og er því örugglega eina stelpan í öllum skólanum sem er yfir kjörþyngd. Bara ég gæti verið svona óheppinn. Ég hitti hana aftur næsta á fimmtudag.
Var veikur frá fimmtudegi til sunnudags, leiðindahósti og fleira. Fékk þó tölvuna mína því Dóri var svo rosalega mikill öðlingur að bjóðast til að sækja hana fyrir mig upp í skóla á laugardegi. Hérna eru svo specs á tölvunni fyrir þá sem fá úr honum við að lesa slíkt (ég veit að ég geri það):
ASUS M6BNe
Skjár: 15,4" WXGA (1280x800)
Örgjörvi: 2.0 Ghz Pentium M Dothan (2mb L2 cache)
Vinnsluminni: 1Gb á einum kubbi
Geisladrif: 4x DVD +/- RW
HDD: 80Gb 5400rpm
Skjákort: ATi Mobility Radeon 9700 64mb
Þráðlaust net: 802.11b/g 54mbps
Ethernet: Gigabit ethernet (10/100/1000)
Og fleiri góðar fréttir: Skröttunum hjá LÍN þóknaðist að gefa mér lánið mitt á föstudaginn svo ég get loksins farið og keypt 50" plasma sjónvarpið sem mig hefur lengi langað í. Setja svo upp smá bíó í íbúðinni og selja aðgang til að eiga pening fyrir mat.
Svo er ég líklegur til að taka enn einn all-nighter sem endar í myglaðari lestarferð heim klukkan sex um morguninn á föstudaginn. Drum&bass kvöld með hetjum eins og High Contrast og London Electricity frá hinni stórgóðu Hospital útgáfu auk þess sem að vinkona mín Yuuka verður á svæðinu.

<< Home