GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

miðvikudagur, febrúar 16, 2005

NiMH

Jebb jebb. Það var frí á föstudaginn í skólanum, nema hvað. Ég hafði samband við spjall félagann minn góða, Ayumi-san og frestaði okkar stefnumóti um viku svo ég og Mikhael gætum notið okkar yfir syrpu af GANTZ með langt frí framundan á fimmtudeginum. Restin af helginni var nokkuð týpísk, seint að sofa og seint á fætur. Fór ekki á þetta drum&bass kvöld þótt mig langaði mikið, aðallega vegna hósta. Það stoppaði þó ekki skyndiákvörðun um að fara á klúbb í Kyoto á fimmtudagskvöldinu sem var reyndar frekar leiðinlegt kvöld fannst mér. Ef Dóri hefði ekki verið með mér í lestinni heim hefði ég eflaust farið svona 2 ferðir frá Kyoto til Osaka og aftur til baka áður en ég vaknaði.

Talaði smá við Yuuku yfir helgina og hún bauð mér að koma á skólaútskriftina hennar! Ég veit ekki hvort ég nenni því samt, þetta er á laugardegi. Kíki kannski ef það verður eitthvað djamm, annars finnst mér ég ekki þekkja hana alveg nógu vel til að mæta á skólaútskriftarathöfnina hennar. Gæti verið forvitnilegt.

Hef lent í vandræðum með að installa japönsku support á tölvuna af Windows disknum mínum og því hef ég ekki getað séð neina japanska stafi síðan ég fékk tölvuna. Tókst þó að laga þetta í dag og ég sé alla stafi og get loksins skrifað á japönsku á tölvuna aftur. Mig langar að spyrja, hversu margir sjá nákvæmlega sjö sjúklega pirrandi 7 spurningamerki í stað japanskra stafa í hausi síðunnar? Ég ætlaði alltaf að skipta þessu út fyrir mynd en nennti því svo aldrei, það gæti breyst í nánustu framtíð. Þú getur mögulega haft áhrif á hversu fljótt það verður með því að kommenta á þetta mál.

Hef varla kveikt á sjónvarpinu síðan ég fékk tölvuna mína. Hver vill vera undir miskun sjónvarpsins kominn þegar úrvalið af afþreyingu er svo gnógt á netinu? What you want, when you want it.
Og annað lag með rippaða slíminu; .:RIP SLYME - Basic Line:.
Over and out.