GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

sunnudagur, febrúar 27, 2005

"Tonight, you are ALL SCISSOR SISTERS!!!"

Komst að því á fimmtudaginn að Yuuka ætti kærasta. Kom mér algjörlega í opna skjöldu miðað við hvað hún var ofur-friendly eitthvað áður. Hafði ekki gert mér neinar vonir svo þetta var ekkert alvarlegt. Bakkaði þó úr þessu djammi af þessari ástæðu enda langaði mig ekkert að splæsa í dýran miða fyrir hana og hanga til morguns niðri í bæ fyrst hún ætti kærasta... Miðað við hvað ég var þreyttur í gær hefði ég líka ekki meikað það lengur en til 1 eða 2 og þá hefði kvöld niðri í bæ alveg sökkað.

Fór í staðinn á tónleika með hljómsveitinni Scissor Sisters með Dóra. Fórum frekar snemma niður í Kyobashi og fórum á færibands-sushi stað sem var ágætur. Átum yfir okkur af sushi þar sem var þó nokkuð sterkt vegna gífurlegs magns af wasabi á hverjum bita. Manni leið eins og maður væri kýldur í nefið stundum eins og Dóri komst að orði.
Tókum svo næstu lest til Shinsaibashi og inn á bar til að fá okkur nokkra bjóra. Svo þegar við komum á tónleikastaðinn þurftum við að hanga í röð sem spannaði 8 hæðir! Magnað.

Tónleikarnir sjálfir voru hálfgerð vonbrigði að mínu mati. Stelpan í hljómsveitinni eyðilagði þetta bara alveg fyrir mér með alveg ótrúlega kjánalegum frösum á milli laga sem áttu víst að byggja upp stemningu en höfðu þveröfug áhrif á mig. Ég vísa í titil færslunnar sem dæmi. Vantaði ekki japönsku frasana hjá henni heldur sem alveg skáru í eyrun á mér. Frekar stuttir tónleikar, tæpur klukkutími og ekkert upphitunarband, svo mér fannst þetta heldur dýrt miðað við það.

Heimsótti grunnskóla á föstudaginn með japönsku bekknum mínum. Skrifa meira um þá ferð innan fárra daga, nenni ekki að fá nöldur yfir því hvað færslan er löng hjá mér :)