Club Triangle
Ég og Mikhael brugðum á leik í gær og fórum til Shinsaibashi á klúbb til að hitta vinkonu mína sem var að fagna skólaútskrift. Hafði ekki minnstu hugmynd að það væri alveg tryllt drum&bass dagskrá á þessum klúbbi þetta kvöldið. Fljótlega eftir að við komum inn ætlaði þakið af húsin vegna hamagangsins hjá plötusnúðnum og tveimur MC-um sem fléttuðu þykkar rímur yfir takta og bassa súpuna. Fyrsta skiptið líka sem ég hef heyrt í kvenkyns MC að ég held, þó mig rámi eitthvað í að Ragga úr Subterranian hafi einhvern tíman verið gestur á breakbeat.is kvöldi. Þrátt fyrir rífandi stemningu á sviðinu var ekki svo mikið af fólki þó og japanarnir heldur rólegri og fábreyttari í dansinum heldur en maður á kannski almennt að venjast. Tókum sem betur fer síðustu lest heim svo ég var kominn heim fyrir klukkan 1 um nótt.
Svo er planið að sjá meistara Roni Size á þessum sama klúbbi um næstu helgi.
Ætla að gefa ykkur smá smakk af rjómanum af J-poppinu, lag með uppáhalds japönsku söngkonunni minni.Það gengur ekkert hjá mér að breyta hausnum á síðunni algjörlega yfir á myndform fyrir þá sem ekki sjá japönsku stafina en ef þið installið örlitlum windows file sem þið finnið hér þá getið þið séð stafina þarna uppi þó þeir séu reyndar örlítið mjórri en þeir eiga að vera. Engin stuðningur fyrir japanskt lyklaborð með þessum pakka þó fyrir þá sem hafa áhuga á að verða sér út um slíkt.
Mikhael vill svo koma því á framfæri að hann gerði mistök í lagavali með færslunni sem hann skrifaði. Hann ætlaði að setja allt annað mix af þessu ákveðna lagi og biður alla sem kunna að hafa hlaðið laginu niður innilega afsökunar fyrir að hafa látið þá hlusta á þetta ömurlega mix eins og hann orðaði það. Er búinn að laga það núna svo þeir sem vilja gefa laginu annan séns geta náð í það hér.

<< Home