Partýdýrið 2000
Stóð mig svona sæmilega í djamminu þessa og síðustu helgi. Á föstudeginum fyrir viku síðan fór ég með Mikhael, Dóra og þremur japönskum strákum og tveimur hressum japönskum stelpum á izakaya stað. Allt voru þetta nemendur úr Kansai Gaidai. Ég var þannig staðsettur við borðið að ég talaði eiginlega bara við stelpurnar. Ég kvartaði ekki. Stórskemmtilegt kvöld, ég og Mikhael áttum mjög skemmtilegt samtal við stelpurnar sem voru bæði skemmtilegar og sætar, en þó báðar fráteknar. Önnur þeirra vildi koma við á Íslandi þegar hún færi í skiptinám til Svíþjóðar og bað mig um að vera guide fyrir sig. Ég sagði það sjálfsagt en við sjáum nú til hvort hún standi við þetta.
Kvöldið endaði svo með að ég, Dóri og tveir af japönsku strákunum fórum í karaoke. Hinir tóku allir síðustu lest heim. Yuichiro (annar af strákunum) var nú fljótur að skríða út úr karaoke klefanum fram á gang þar sem hann drapst í einhverjum sófa. Við hinir þöndum raustina af miklum móð þangað til allir voru orðnir hásir. Dóri stal svo hristunni úr karaoke herberginu og hristi sér leið inn í Lawson þegar við vorum komnir heim og vakti þetta uppátæki mikinn fögnuð hjá starfsmönnum sem voru ákafir í að fá að spreyta sig líka á hristunni.Núna á föstudaginn fór ég svo að hitta hana Tomoko vinkonu mína. Fyrir þá sem ekki þekkja hana var hún í skiptinámi við HÍ síðasta vetur og er auk þess kærastan hans Helga, fyrrverandi bekkjarbróður míns úr japönskunni í HÍ. Fór með henni og vinkonu hennar Hyon á izakaya í Umeda þar sem vel var etið en ekki svo mikið drukkið. Svo var ákveðið að fara í karaoke eftir á sem ég verð að segja var ein af mínum skemmtilegari karaoke ferðum hingað til. Sleppti vel af mér beislinu þrátt fyrir að vera ekki svo drukkinn.
Miðannarprófin eru í vikunni og svo páskafríið beint á eftir. Veit ekki alveg hvað ég ætla að gera í fríinu ennþá. Það er farið að hitna þónokkuð hérna, komið upp í 10-15°C á daginn. Gott stöff.

<< Home