GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

fimmtudagur, mars 03, 2005

Skólaheimsókn

Heimsótti grunnskóla með bekknum mínum síðasta föstudag eins og ég var búinn að segja frá. Þegar þangað var komið vorum við beðin um að fara úr skónum náttúrulega og okkur boðið upp á inniskó í staðinn enda gólfið þarna mjög gróft og skítugt. Ég nota skóstærð 45-46 sem gerði þetta frekar leiðinlegt enda voru inniskórnir fáránlega litlir allir. Þurfti að berjast við að halda þeim á löppunum auk þess sem að þeir coveruðu bara 2/3 af ilinni á mér.

Okkur var vísað inn í bókasafnið og boðið upp á te. Smám saman fór að myndast stigvaxandi niður í fjarlægð innan byggingarinnar og maður ímyndaði sér að tsunami alda eða heill her væri á leiðinni. Krakkarnir komu svo inn í herbergið með tilheyrandi látum, allt krakkar úr 11 ára bekk. Okkur var svo vísað til að setjast hver og eitt við borð fullt af krökkum og beðin að standa upp og kynna okkur svo og svara spurningum. Fór nettur "Eeeee?" kliður yfir herbergið þegar ég sagðist vera frá Íslandi og alveg öskrandi kór af "EEEEEEEE!?!" þegar bekkjarbróðir minn Ken svaraði spurningu um hversu hávaxinn hann væri.

Eftir það spjallaði ég við krakkana við borðið mitt og spila við þá tvennskonar spil. Þar sem að ég sagði að upphálds íþróttin mín væri fótbolti þegar krakkarnir spurðu mig var svo farið í fótbolta þegar komu frímínútur. Liðin voru strákar á móti stelpum með ca. 30 í hvoru liði! Frekar chaotic en við strákarnir náðum einu marki inn undir endann.

Þegar inn var komið aftur var keppni í sjómanni. Ég vann krakkana við mitt borð eins og drekka vatn en mér til mikillar furðu átti ég mjög erfitt með tvo stráka af öðrum borðum. Ég vissi reyndar að þeir hefðu unnið einn af Bandarísku strákunum og allar stelpurnar en ég var samt ekki að kaupa þetta þangað til ég fékk að spreyta mig á þeim. Ég veit ekki hvað þeir gefa þessum krökkum hérna að éta! Svo voru nokkur einvígi upp við töfluna í bókasafninu sem allir horfðu á og þar sem krakkarnir við borðið mitt ætluðu ekki að hætta að hvetja mig til að taka þátt þá stóð ég upp. Keppti við lítinn gutta sem ég leyfði að nota báðar hendur. Hann vann mig en með algjöru svindli, hann var svo upptekinn við að leggja allan þunga líkama síns á hendina á mér að hann sneri upp á hana, frekar sársaukafullt. Tóraði þó í tæpa hálfa mínútu með hnefann sentimetra yfir borðinu. Algjör jötunn.

Fórum svo í fleiri leiki í íþróttahúsinu sem voru mis ruglingslegir enda ekkert útskýrt á ensku. Í hádeginu fórum við svo í skólastofur krakkana og borðuðum heitan mat með þeim og drukkum mjólk með.
Þurftum svo að bíða í 25 mínútur eftir leigubílunum til baka, Ken nýtti tímann vel í að sýna enn einu sinni hversu mikill vitleysingur og redneck hann væri. Það virðast engin takmörk fyrir því hvað þessi náungi er mikill api. Talaði um hvað hann ætti mikið af byssum og svo spurði hann okkur hvort við hefðum smakkað björn. Enginn hafði gert það en hann sagði þá ljúffenga og flýtti sér að bæta því við að hann hefði skotið björn. Í sakleysi okkar spurðum við hann hvers vegna hann hefði gert það og Ken svaraði: "'Cause I wanted a rug for my room, you know."

Var svo dauðþreyttur eftir daginn um kvöldið að þegar ég lagði mig klukkan 19:30 um kvöld vaknaði ég ekki fyrren daginn eftir.

Að lokum ætla ég að kynna smá gjörning hér á blogginu, ég fæ góðvin minn hann Mikhael til skrifa inn færslu sem gestabloggari innan tíðar. Það verður röff og töff svo látið ykkur hlakka til.

Ooog obbosí, nýtt lag, .:4Hero - Hold It Down (Bugz in the Attic rmx):.