GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

laugardagur, apríl 02, 2005

Afmælisdagurinn 2005 (uppfært)

Vegna fjölda áskoranna og almenns skorts á efni til að skrifa um hef ég ákveðið að verða við þeim óskum um að skrifa um afmælisdaginn minn.

Vaknaði vel myglaður klukkan 07:40 miðvikudaginn 30. mars, lítið sofinn því ég var ennþá að rétta sólarhringinn við eftir páskafríið og átti mjög erfitt með að sofna um nóttina. Eftir hina hefðbundnu sturtu og barnaefnisgláp í sjónvarpinu lagði ég af stað í skólann. Kom við í Seattles Best Coffee og keypti mér SBC Mocha Grande to go! Fljótlega var ég mættur inn í skólastofu þar sem Saigo-sensei hélt við uppteknum hætti að kenna okkur japönsku á sinn twisted og warped hátt. Stórskemmtilegur kennari þar á ferð.
Eftir tíma notaði ég gatið til að klára heimaverkfni fyrir næsta tíma, fínpússa bréf á japönsku til Umezawa-sensei heima á Íslandi. Næsti tími kom svo og fór og var ég þá búinn í skólanum, klukkan 10:50. Langbesti dagurinn í vikunni upp á hvað ég er búinn snemma, þó mér finnist ennþá mjög hart að þurfa að mæta klukkan 09:00.

Hitti Ayumi-san, spjallfélagann rómaða og vinkonur hennar í hádegismat. Er eiginlega alveg búinn að gefast upp á club-lunch í mötuneytinu (eða crap lunch eins og við köllum hann) svo ég hef eflaust fengið mér donburi eða udon ásamt gómsætum diski af ananas eða bara einhverju öðru ómerkilegu.
Ayumi kynnti mig fyrir nýrri vinkonu sem sagði ekkert við mig allan tíman, og þær allar reyndar því þessi hittingur samanstóð af því að þær voru allar húktar yfir einhverjum einkunnalista yfir bekkinn þeirra og töluðu lítið sem ekkert við mig. "Voða spennandi" eins og Agnar Burgess sagði um árið. Svo tjáði Ayumi mér að við værum á leiðinni í Hirakata Park, sem er skemmtigarður hér í Hirakata, vegna þess að hún fékk frímiða fyrir okkur öll frá vini sínum sem vinnur þar. Fyndið hvernig ég var ekkert spurður um mitt álit á þessu öllu saman, bara sagt við mig "við erum að fara saman".

Ég labbaði svo með Ayumi að CIE byggingunni (Center for International Education, þar sem allir kúrsar fyrir útlendinga eru kenndir) og hitti þar fyrir Tae-san sem var ein af skemmtilegu stelpunum sem ég skrifaði um í færslunni "Partýdýrið 2000". Hún á vinkonu sem er á leiðinni til Íslands sem hefur áhuga á að hitta mig og hún sagði mér að hún hefði verið að labba þarna fyrir stuttu síðan og benti mér á hana í fjarlægð. Ég ákvað að hlaupa á eftir henni en missti af henni inn í byggingu þar sem ég fann hana ekki.

Eftir þetta ævintýri lá leiðin heim á leið þar sem lagst var í almennt chill og leti. Fékk mér páskaegg sem ástkær móðir mín hafði sent mér og opnaði afmælisgjöfina frá fjölskyldunni í Þingholtsstrætinu sem reyndist vera DVD útgáfan af Íslenska Draumnum. Ánægður með þetta. Fékk líka þetta geðveikt rad kort með pakkanum sem systur mínar völdu handa mér, tékkið á þessu;

Glöggir Star Trek nördar sjá ef til vill smá "staðreyndarvillu" í myndinni, en geimskipið á myndinni er Enterprise D, en réttilega ætti það að vera Enterprise A sem original crew-ið þeyttist um á um heima og geima.

Varð frekar fljótlega mjög þreyttur enda lítið sofinn eins og áður sagði og ákvað að leggja mig. Var svo slappur að ég talaði við strákana sem ég var búinn að bjóða í pizzupartý hjá mér og mynd um kvöldið og sagði þeim að ég væri bara allt of þreyttur til þess. Lagði mig svo í rúmlega þrjá tíma eða þangað til ég neyddi mig á fætur. Talaði við mömmu á messenger og fékk þar fyrstu afmælishamingjuóskir dagsins. Sótti um á stúdentagörðunum og spurði Sesselíu stuttlega ráða með það og hún mundi eftir því að ég átti afmæli! Ánægður með það, afmælisóskir #2. Fékk svo e-mail frá Mikhael, þriðju og síðustu afmælisóskir dagsins. Dóri hafði ekki einu sinni rænu á að óska mér til hamingju með daginn þrátt fyrir að ég færi upp til hans til að aflýsa pizzupartýinu. Býð honum aldrei í afmælið mitt aftur, svo mikið er víst.

Kvöldið fór svo bara í eitthvað hangs, netið, animegláp og kíkti aðeins í bækurnar fyrir kanji próf morgundagsins. Rölti yfir í SunKus jú og keypti mér instant spagettí í kvöldmat. Kom mér svo tiltölulega snemma í bælið, en nóttin átti eftir að reynast verri en fyrri nóttin hvað svefn varðar. Hefði betur sleppt því að leggja mig, lagði mig svo ekkert á fimmtudeginum og svaf vel aðfaranótt föstudags. Phew!

EDIT: Ég vil taka það fram að þó ég hljómi eitthvað bitur í þessari færslu er ég það alls ekki, just giving you grief. Ég vil þakka öllum þeim sem mundu eftir afmælinu mínu, hef fengið fjölda kveðja sem sendar voru bæði á afmælisdaginn minn (að íslenskum tíma) sem og stuttu eftir á og kann ég mjög vel að meta það. Annars skipta þessi afmæli engu máli svo þið þurfið ekki að hafa áhyggjur... Gleymdi svo að minnast á elsku Öddu frænku sem sendi mér kveðju gegnum kommentakerfið.