GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Fishy kjarnorka

Ég og Mikhael tókum lest niður á höfn og fórum í Osaka Aquarium á laugardaginn. Safnið er allt hið glæsilegasta og ku vera eitt stærsta sædýrasafn heimsins. Sportar meðal annars stærsta innanhús vatnstanki í heiminum sem inniheldur 5.400 rúmmetra af vatni. Í honum er meðal annars hinn gríðarstóri hvala-hákarl (whale shark) Yu-chan sem er tæpur 4,5 metri á lengd. Ocean Sunfish (sjávarsólarfiskur??) var líka nokkuð merkilegur og marglytturnar í enda safnsins voru mjög flottar, lýstar upp með hinum ýmsu ljósum.

Eftir að hafa eytt dágóðum tíma í að labba í gegnum safnið fórum við á Suntory Museum og fengum okkur að borða á veitingastað safnsins. Komst að því að það er IMAX bíó við hliðana á safninu, reyni að skella mér þangað bráðlega ef þeir eru með einhverja sniðuga þrívíddarmynd. Á leiðinni á lestarstöðina komum við svo við á stað sem seldi bara svokallaðan "snow-ice" sem er frekar skrítið fyrirbæri. Einskonar mjög bragðdaufur ís sem virðist þurr og snjókenndur og bráðnar uppi í manni. Lítur út eins og sag í rauninni, stórfurðulegt.

Tókum svo lest upp í Umeda til að hitta vinkonu mína Tomoko sem ég hef minnst á áður. Hún fór með okkur á izakaya og áttum við skemmtilega kvöldstund þar. Tókum svo síðustu lest heim þrátt fyrir að okkur dauðlangaði öll á klúbb að dansa, ekki nógu mikið samt til að hanga í 7 tíma í viðbót í Osaka..

Síðasta vika var sæmilega blogghæf. Fór á tvo fyrirlestra í röð hjá manni sem vinnur hjá einum stærsta enska fréttamiðlinum í Japan. Kom mér skemmtilega á óvart að í kynningunni var minnst á að hann hefði byrjað sem tölvuleikjafréttamaður. Fékk strax plús í kladdann hjá mér. Fyrri fyrirlesturinn var um spennuna milli Norður-Kóreu og Japan og njósnastarfsemi Norður-Kóreu manna í Japan. Meðal annars hélt hann fram að japanski leikjarisinn Capcom hafi haft einhver peningaleg tengsl til Norður-Kóreu í fortíðinni. Spooky stuff, en þó ekki nærri því jafn spooky og seinni fyrirlesturinn sem var um kjarnorkumál Japans en þeir hafa ansi oft vægast sagt skitið á sig upp á bak í þeim málum. Kjarnorkuiðnaðurinn hérna er alveg rotinn inn að kjarna (góður Gummi!) ef marka má fyrirlesturinn, eftirlitsmenn sem horfa í hina áttina, bæjarfélög dugleg að kæfa niður vandamál sem upp koma enda eru þau flest algjörlega háð kjarnorkuverunum um vinnu handa fólkinu auk þess sem þessum bæjum er ríkulega umbunað fyrir að leyfa byggingu og rekstur kjarnorkuvers á sínum jörðum, og kjarnorkuver sem aldrei hafa verið skoðuð í mörg ár og fleira og fleira.
Fyrir 10 árum síðan voru Japanir t.d. einir eftir í heiminum sem ráku svokallaða "fast breeder reactors" en allar aðrar þjóðir sem höfðu rekið slíka tilrauna kjarnaofna höfðu hætt því vegna gífurlegs kostnaðar við að byggja þá og reka auk þess sem þeir eru stórhættulegir. Þessi kjarnaofn Japana kallast Monju og vegna slyss árið 1995 var hann samkvæmt útreikningum japanskra stjórnvalda 3 mínútum frá því að springa og valda kjarnorku holocaust sem hefði þakið allt Kansai svæði Japan og gert það óbúanlegt næstu 30.000 árin að minnsta kosti. Hananú! Og þetta er bara eitt af nokkrum kjarnorkutengdum slysum hér í Japan síðustu 10-15 árin.