GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

mánudagur, apríl 25, 2005

Lestarslys

Kommentakerfið mitt sem er í boði CommentThis virkar ekki sem stendur því CommentThis serverinn liggur niðri. Búið að standa yfir í tæpa tvo sólarhringa núna svo ég er orðinn smá áhyggjufullur. Sem afleiðing er allt bloggið rosalega lengið að hlaðast upp, verð að byðja ykkur um þolinmæði á meðan þessu stendur. Gef þessu nokkra daga í viðbót áður en ég fer að halda að eitthvað rosalegt hafi komið fyrir CommentThis og set upp nýtt kommentakerfi.
Núna er þó hægt að komast á síðu Comment This þar sem segir að serverinn liggi niðri og unnið sé að viðgerðum.

Það varð mjög alvarlegt lestarslys í Japan í morgun í Amagasaki, Hyogo prefecture. Ekki er ennþá vitað hvað olli slysinu en lestin fór út af sporinu og fyrstu þrír vagnarnir snerust og klesstu á fjölbýlishús þar sem fremsti vagninn fór að hluta til inn í blokkina. Lestin á að hafa farið óeðlilega hratt, yfir 100 km hraða á kafla þar sem hámarkshraði var 70 km. Getgátur eru uppi um að lestarstjórinn hafi verið að reyna að vinna upp seinkun sem hafði orðið við síðasta stopp sem lestin gerði, en það kom upp eitthvert óvenjulegt vandamál upp þar við lestina sem enn er óútskýrt. Hann hafði víst áður orðið uppvís um mistök í lestarakstri í fyrra sem hann útskýrði með því að hafa sagst vera annars hugar.

Búið er að staðfesta 50 látna og yfir 300 slasaða og er enn verið að skera í gegnum vagnana til að bjarga út fólki. Búin að vera stöðug fréttaumfjöllun í allan dag um þetta, viðtöl við fólk í mjög óstöðugu andlegu ástandi og myndir af fólki sem er búið að bjarga úr lestinni liggjandi um eins og hráviði.
Ljóst er að þetta er alvarlegasta lestarslys í 40 ár í Japan. Japanskar lestir eru þó frægar fyrir öryggi og með besta track-record í heiminum í rekstri lesta.