GUMMI Í JAPAN :: グッミは日本にいるよ

föstudagur, apríl 15, 2005

Sakura

Fór í hanami (blóma(sakura)skoðun) á föstudeginum fyrir viku síðan. Fór í hof í Kyoto með japönum, íslendingum og rússa. Sátum undir sakuratrjánum og borðuðum mat og drukkum öl, mjög skemmtilegt en nokkuð kalt, mannskapurinn frekar illa klæddur enda steikjandi hiti um daginn.

Einn japanski strákurinn í hópnum var alveg stórskemmtilegur. Takashi-san heitir hann en vill láta kalla sig Taku þar sem allir útlendingar rugla alltaf nafninu hans við Takeshi eða jafnvel Takahashi sem er fjölskyldunafn, algjör móðgun. Það sem mér fannst sérstaklega skemmtilegt við hann var að hann hafði séð hvert einasta anime sem ég fleygði í hann og alltaf með svarinu "Wha, OF COURSE!!" Japanir eru nefnilega ekki svo öflugir í að horfa á þann aragrúa af anime sem þeir framleiða sjálfir og anime er ekki nálægt því jafn vinsælt hér í Japan og við anime fíklar vildum. Flestir kannast ekki við neitt af því anime sem ég nefni (er alltaf spurður hvað ég fíla þegar þetta kemur upp í samræðum) nema ef til vill Evangelion og svo Miyazaki myndirnar auðvitað.
Nú Taku-san er þar að auki harður pachinko fíkill og er gróði úr því hans eina innkoma að ég held. Hann ætlaði í rosalega pachinko leiðangur á mánudaginn sagði hann okkur en þegar ég hitti hann svo í skólanum á þriðjudeginum bað hann mig sérstaklega að vera ekkert að spyrja hvernig hefði gengið.

Eftir að stelpurnar voru búnar ditcha okkur fórum við allrahörðustu djammararnir inn á næsta bar eftir drykkjum. Mannskapurinn eitthvað slappur samt og sumir vildu heim svo það var ákveðið að koma sér heim eftir nokkra drykki. Allar lestir til Hirakata voru þó farnar en Taku reddaði því með því að fá vin sin til að skutla okkur frá Kyoto til Gotenyama, mjög vel þegið það. Ég, Siggi Maggi og þrír japanskir strákar skröltum semsagt í klukkutíma í bíl á milli bæja og var ég kominn háttaður og undir sæng um tvö leytið.

Hitinn hækkar með hverjum deginum og er kominn upp í 20 stig núna, mann langar mest í útigrillveislu og bjór! Það voru nú ekki ófáar stelpurnar í pilsum yfir veturinn, en núna eru þær eiginlega í meirihluta. Ég kvarta ekki. Það er það sem ég á eftir að sakna mjög við Japan, þennan gríðarmikla fjölda af stelpum í pilsum. Hvað varð um þennan klæðnað á Íslandi? Aldrei í pilsum þessar skvísur heima!
Sjálf Mariah Carey í sjónvarpinu í gær að gera sig að fífli í einhverjum japönskum þætti. Svo var líka risinn úr Big Fish í japönskum þætti um síðustu helgi, frekar dónalegt freak-show fannst mér. Nóg að gerast í vikunni sem ég hef verið of latur til að skrifa um. Verð upptekinn mest allan daginn á morgun svo ég veit ekki hvort ég geti bætt inn færslu þá en reyni að skrifa eitthvað aftur mjög fljótlega.